VG í Eyjum, vill,að Atli segi af sér þingmennsku

Stjórn Vinstri grænna í Vestmannaeyjum skorar á Atla Gíslason að segja af sér þingmennsku svo að varamaður hans geti tekið sæti á Alþingi.

Í yfirlýsingu stjórnarinnar segir að ákvörðun Atla að segja sig úr þingflokki VG hafi valdið miklum vonbrigðum, en Atli er þingmaður flokksins í Suðurkjördæmi. „Með úrsögninni telur stjórnin að Atli sitji ekki lengur á Alþingi í umboði kjósenda VG í kjördæminu."

Stjórnin ítrekar fullan stuðning sinn við ríkisstjórn Vinstri grænna og Samfylkingarinnar og „lýsir yfir ánægju með þann árangur sem náðst hefur á fjölmörgum sviðum þjóðmála við einar erfiðustu aðstæður sem nokkur ríkisstjórn hefur þurft að glíma við. Afar mikilvægt er að ríkisstjórnin geti áfram starfað við að leysa þau mikilvægu og erfiðu verkefni sem fram undan eru á sviði efnahags- og atvinnumála, jafnaðar, jafnréttis, umhverfis- og auðlindamála," segir í yfirlýsingunni.(visir.is)

Mér kemur ályktun VG í Eyjum ekki á óvart.Þær málástæður sem hann og Lilja Mósesdóttir færa fram sem ástæðu fyriir úrsögn úr þingflokki VG eru mjög ótrúverðugar.Þau nefna ástæður,sem fremur áttu við þegar stjórnin var mynduð en nú,t.d. að stjórnin hafi samþykkt áætlun AGS og að sækja um aðild að ESB. Auðvitað áttu þessir þingmenn að mæla gegn .þessum málum við stjórnarmyndunina en ekki nú.

 

Björgvin Guðmundsson

 

 

 



 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband