Hefur ekki áhrif á samstarfið við AGS

Franek Rozwadowski, fulltrúi Alþjóðagjaldeyrissjóðsins á Íslandi, segir óvíst hvaða áhrif niðurstaða þjóðaratkvæðagreiðslunnar muni hafa á íslenskt efnahagslíf.

„Á þessum tímapunkti hef ég ekki mikið um það mál að segja vegna þess að við höfum ekki lokið við greiningu á því atriði. Þessi áhrif munu velta á á viðbrögðum fjárfesta og markaðarins," segir Rozwadowski í samtali við Vísi. „Efnahagsáætlun stjórnvalda er á áætlun og núna reiknum við með því að ólíklegt sé að niðurstaða þjóðaratkvæðagreiðslunnar stefni í hættu efnahagslegum eða fjármálalegum stöðugleika á Íslandi, vegna þess að efnahagsáætlunin var í réttum farvegi," segir Rozwadowski.

Rozwadowski segir að framundan sé fimmta endurskoðun efnahagsáætlunar Alþjóðagjaldeyrissjóðsins. Rætt hafi verið um að ljúka þeirri niðurstöðu eftir þjóðaratkvæðagreiðsluna vegna þess að niðurstöður myndu hafa áhrif á endurskoðunina, til að mynda varðandi afnám gjaldeyrishafta.

Aðspurður ítrekar Rozwadowski fyrrverandi fullyrðingar Alþjóðagjaldeyrissjóðsins um að Icesave samningurinn hafi aldrei verið skilyrði fyrir samning um efnahagsáætlun Alþjóðagjaldeyrissjóðsins og íslenskra stjórnvalda. „Við höfum lagt á þetta áherslu frá upphafi og þannig er það ennþá," segir Rozwadowski. Hins vegar sé það líka sjónarmið Alþjóðagjaldeyrissjóðsins að lausn deilunnar sé mikilvæg fyrir endurreisn íslensk efnahagslífs. Sú lausn þurfi að vera þolanleg fyrir efnahag og fjármál íslenska  ríkisins.(visir.is)

Þetta eru góðar fréttir.Það er gífurlega mikilvægt fyrir Ísland,nú þegar Icesave samkomulaginu hefur verið hafnað,að efnahagsáætlun Íslands og AGS haldi snuðrulaust.

 

Björgvin Guðmundsson


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband