Karl biskup hefur ekkert gert af sér

Nú er byrjuð óhróðursherferð gegn Karli Sigurbjörnssyni biskup.Kona,sem segir,að Ólafur Skúlason hafi beitt sig kynferðislegu ofbeldi  krefst þess að Karl biskup segi af sér. Og fyrir hvaða sakir? Jú,að hann hafiu ekki starfað heiðarlega að máli hennar!

Karl Sigurbjörnsson og Hjálmar Jónsson voru beðnir að miðla málum í deilu konunnar og Ólafs biskups.Karl var þá óbreyttur prestur en Hjálmar var alþingismaður.Búin var til yfirlýsing samkvæmt ósk konunnar og þeir Karl og Hjálmar fóru með hana til Ólafs Skúlasonar. Ólafur vildi ekki fallast á eitt eða neitt,neitaði öllum sakargiftum.Þá sögðu prestarnir,Karl og Hjálmar við konuna,að þeir gætu ekki gert meira í málinu., En þá var ráðist á þá Karl og Hjálmar í blöðunum og þeir sakaðir um að hafa breytt yfirlýsingu konunnar o.s.frv. Þeir neituðu því og sögðu það alrangt. En þessir tveir prestar,sem voru að reyna að miðla málum voru allt í einu orðnir sökudólgar. Og nú heldur þetta áfram. Nú er ráðist gegn Karli Sigurbjörnssyni  og þess krafist að hann segi af sér. Ég segi: Karl hefur ekkert gert af sér. Hann á vera kyrr í embæltti.Ég tel,að hann hafi staðið sig vel.

 

Björgvin Guðmundsson


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband