Miðvikudagur, 15. júní 2011
Þjóðaratkvæðagreiðslu um uppboð eða 15 ára leigutíma
Björgvin Guðmundsson skrifar grein í Morgunblaðið í dag um kvótafrumvörpin.Þar segir svo:
Frumvörp sjávarútvegsráðherra um breytingar á kvótakerfinu hafa nú verið lögð fram á alþingi.Fréttir,sem borist höfðu um frumvörpin, hafa staðist.Þetta eru handónýt frumvörp og alls ekki í samræmi við stefnu stjórnarflokkanna í þingkosningunum eða í stjórnarsáttmála. Fyrningarleið Samfylkingar og VG hefur verið ítt út af borðinu. Í staðinn er komin tillaga um að afhenda útgerðarmönnum megnið af veiðiheimildunum (í byrjun 92%) til leigu í 15 ár með möguleika á 8 árum til viðbótar.Hreyfingin hefur lagt fram frumvarp á alþingi um,að allar veiðiheimildir verði boðnar upp á markaði.Forsætisráðherra hefur áður hreyft þeirri hugmynd að leggja ætti kvótamálið í þjóðaratkvæðagreiðslu.Tel ég,að best væri að leggja báðar leiðirnar undir þjóðina, leið ríkisstjórnarinnar og leið Hreyfingarinnar. Þjóðin hefði þá skýra valkosti og gæti valið um það hvort hún vildi,að aflaheimildir væru boðnar upp á uppboðsmarkaði eða leigðar handhöfum kvótanna í 15-23 ár. Ég tel betra að bjóða aflaheimildirnar upp.Það er réttlátari leið.Hún gefur nýjum aðilum meiri möguleika en núverandi handhafar kvótanna hafa samt sömu möguleika að bjóða í veiðiheimildir. Að sjálfsögðu þyrfti reglur um það hvað hver mætti bjóða í mikið af veiðiheimildum, þar eð enginn mætti kaupa of mikið.Ég hefði talið fyrningarleiðina besta kostinn en úr því að ríkisstjórnin og útgerðin eru sammála um að vera á móti henni er uppboðsleiðin eina færa leiðin.Uppboðsleiðin mundi einnig gefa eiganda kvótanna,þjóðinni,mikið meiri tekjur.Það má segja,að með uppboðsleið fengi þjóðin sannvirði í leigu fyrir afnot útgerðar af sjávarauðlindinni. Það er kominn tími til, að svo verði eftir að útgerðarmenn hafa haft kvótana á leigu í langan tíma,fyrst frítt og síðan fyrir mjög lágt gjald.
Mikil óánægja er með kvótafrumvörp sjávarútvegsráðherra. Bæði stjórnarliðar og stjórnarandstæðingar eru óánægðir og að sjálfsögðu LÍÚ og útgerðin,sem vill engar breytingar á kvótakerfinu.Það sem þingmenn eru einkum óánægðir með, er að sjávarútvegsráðherra verði veitt of mikið vald en einnig er óánægja með að banna eigi varanlegt framsal aflaheimilda.Þá er óánægja með bann á veðsetningum aflaheimilda.Nokkrir stjórnarliðar telja leigutímann,15 ár, of langan. Nokkuð almenn ánægja er með, að skýr ákvæði eru í kvótafrumvarpinu um eignarhald þjóðarinnar á sjávarauðlindinni.Einnig er nokkuð almenn samstaða um nauðsyn þess að hækka gjald fyrir afnot auðlindarinnar. Margir telja,að hækkunin hefði mátt vera meiri.Skiptar skoðanir eru um pottana. Gert er ráð fyrir aukningu í strandveiðum og auknum heimildum í byggðatengdum aðgangi að veiðiheimildum.Allir kvótahafar eiga að leggja til í potta vegna framangreindra veiða.Sennilega mun þingið draga úr valdi sjávarútvegsráðherra við stjórn á pottunum. Ég tel eðlilegt,að svo verði gert. Ef til vill mætti fá sveitarfélögunum vald yfir pottunum í staðinn.
LÍÚ hefur hamast gegn frumvörpum sjávarúvegsráðherra. Það er spurning hvort samtökin hefðu nokkuð látið verr gegn fyrningarleiðinni.Ég efast um það. Í rauninni er alveg sama hvaða leið ríkisstjórnin hefði komið með í kvótamálum.Útgerðarmenn hefðu alltaf lagst gegn þeirri leið. Þeir vilja óbreytt kerfi og engar breytingar.Mistök ríkisstjórnarinnar voru þau að ráðgast um of við LÍÚ og að taka of mikið tillit til óska samtakanna.Þó ríkisstjórnin hafi algerlega gefist upp á fyrningarleiðinni og boðið útgerðarmönnum á silfurfati 15-23 ja ára nýtingarrétt breytir það engu um afstöðu LÍÚ.Nú er það aðeins þjóðin,sem getur skorið úr um það hvað leið á að fara í kvótamálunum.Það verður að fara fram þjóðaratkvæðagreiðsla um málið og ég vona,að í þeirri atkvæðagreiðslu muni verða samþykkt að setja aflaheimildirnar á uppboðsmarkað.Það er réttlátasta leiðin úr því sem komið er.
Björgvin Guðmundsson
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.