Föstudagur, 8. júlí 2011
Ekki á að refsa öldruðum fyrir að vinna og spara
Björgvin Guðmundsson skrifar grein í Morgunblaðið í dag um endurskoðun almannatrygginga.Þar segir svo:
Endurskoðun laga um almannatryggingar stendur nú yfir.Miklar vonir eru bundnar við þessa endurskoðun, þar eð núgildandi lög eru á margan hátt orðin úrelt.Tekjutengingar eru orðnar alltof miklar og nauðsynlegt að afnema þær eða draga úr þeim að verulegu leyti.Þegar nýsköpunarstjórnin kom almannatryggingum á fót árið1946 að kröfu Alþýðuflokksins voru lögin mjög góð og innleiddu kerfi almannatrygginga,sem var eins og það gerðist best í grannlöndum okkar. Ólafur Thors forsætisráðherra nýsköpunarsstjórnarinnar lýsti því þá yfir, að almannatryggingar á Íslandi ættu að vera í fremstu röð og fyrir alla án tillits til stéttar og efnahags.Á þeim tíma, sem liðinn er síðan, hafa almannatryggingar á Íslandi dregist verulega aftur úr almannatryggingum í hinum norrænu löndunum.
Hugsunin á bak við almannatryggingarnar var í upphafi sú, að almannatryggingarnar væru eins og hverjar aðrar tryggingar.Menn greiddu til þeirra meðan þeir væru í vinnu en fengju síðan greitt frá þeim, ef slys eða veikindi bæru að höndum og þegar þeir yrðu að hætta að vinna vegna aldurs. En með því að auka stöðugt tekjutengingar í kerfinu og láta greiðslur úr lífeyrissjóðum skerða tryggingabætur hafa almannatryggingar verið að þróast í átt til fátækraframfærslu.Það var ekki meiningin, þegar tryggingunum var komið á fót. Þegar ákveðið var 1.júlí 2009 að láta greiðslur úr lífeyrissjóðum skerða grunnlífeyri datt stór hópur eldri borgara út úr kerfinu og fær í dag engan lífeyri frá almannatryggingum enda þótt sá sami hópur hafi greitt til almannatrygginga alla starfsævina.Það er ótækt.5210 eldri borgarar urðu fyrir tekjuskerðingu vegna þessa.Áður töldust greiðslur úr lífeyrissjóði ekki til tekna við útreikning grunnlífeyris.En frá 1.júlí 2009 teljast þær til tekna við þann útreikning. Það verður að leiðrétta þetta og hverfa aftur til þess ástands sem var fyrir 1.júlí 2009.Að mínu mati eiga allir eldri borgarar rétt á grunnlífeyri.
Það er krafa samtaka eldri borgara, að afnumin verði skerðing tryggingabóta vegna greiðslna úr lífeyrissjóði.Landssamband eldri borgara og Félag eldri borgara í Reykjavík vilja, að þessi leiðrétting verði gerð sem fyrst.Gera má þessa leiðréttingu í áföngum, til dæmis í tvennu lagi.Það var aldrei meiningin,þegar lífeyrissjóðirnir voru stofnaðir, að þeir yrðu til þess að skerða tryggingabætur almannatrygginga. Þeir áttu að verða viðbót við almannatryggingar.Nú er það svo, að sá sem fær t.d. 50 þúsund krónur á mánuði úr lífeyrissjóði verður að sæta því, að tryggingabætur hans séu skertar um nákvæmlega sömu upphæð, þ.e. 50 þúsund á mánuði. Þessi maður fær því ekkert meira í lífeyri samanlagt en sá,sem aldrei hefur greitt í lífeyrissjóð.Af þessu sést út í hvaða ógöngur kerfið er komið í.Þá er skerðing tryggingabóta aldraðra vegna atvinnutekna alltof mikil. Það verður að auka frítekjumark vegna atvinnutekna.Það er lágmark,að það sé 100 þúsund á mánuði en helst þyrfti það að vera 150 þús.á mánuði. Það á ekki að refsa ellilífeyrisþegum, sem vilja vinna.Einnig þarf að auka verulega frítekjumark vegna fjármagnstekna. Frítekjumarkið er hlægilega lágt í dag.(98 þúsund á ári) Eðlilegt væri að eldri borgarar gætu átt nokkuð sparifé í banka án þess að það ylli skerðingu tryggingabóta.Spurning er einnig hvort ekki ætti að hafa ákveðna upphæð sparifjár í banka skattfrjálsa.Eldri borgarar hafa byggt upp það þjóðfélag,sem við búum við í dag. Stjórnvöld eiga að stuðla að því að aldraðir geti lifað með reisn á síðasta hluta æviskeiðs síns.
Björgvin Guðmundsson
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Sagði ekki fyrri velferðarráðherra að það væri þægilegast að taka peninga frá ellilífeyrisþegum og öryrkjum því þeir gætu ekkert sagt, allavega var það innihald þess sem hann sagði.
er þetta ekki velferðin í hnotskurn að stela af eldri borgurum því þetta er ekkert annað en þjófnaður þegar þú færð ekki úr sjóðum sem þú hefur greitt í yfir 60 ár.
BBM
Baldur B.Maríusson (IP-tala skráð) 8.7.2011 kl. 15:35
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.