Miðvikudagur, 31. ágúst 2011
Þjónustujöfnuður jákvæður um 16 milljarða
Þjónustujöfnuður við útlönd á öðrum ársfjórðungi var jákvæður um 15,9 milljarða króna, samkvæmt bráðabirgðatölum Hagstofunnar. Útflutningur á þjónustu á fjórðungnum var 86 milljarðar en innflutningur á þjónustu 70,1 milljarður króna. Samgöngur er stærsti þjónustuliður í útflutningi á þjónustu og afgangur vegna þeirrar þjónustu var um 16,3 milljarðar. Halli á ferðaþjónustu var um 0,8 milljarðar.
Á árinu 2010 var seld þjónusta til útlanda fyrir 300,1 milljarð króna en keypt var þjónusta frá útlöndum fyrir tæpa 266,1 milljarð króna. Þjónustujöfnuður var því hagstæður um 34,1 milljarð króna en var hagstæður um 36 milljarða á árinu 2009 á gengi hvors árs.(visir.is)
Björgvin Guðmundsson
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.