Sprengir Kínverjinn stjórnina?

Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra var gestur í Kastljósi í kvöld. Umræðuefnið var umsókn kínverska auðkýfingsins um að kaupa jörðina  Grímsstaði.Ögmundur benti  á,að eignarhaldi á jörðinni fylgdu vatnsréttindi,orkuréttindi  og önnur réttindi til nýtingar auðlinda jarðarinnar.Þetta snérist því ekki aðeins um sölu á jörðinni heldur einnig um að afsala sér auðlindum jarðarinnar.Þóra Arnórsdóttir,sem var viðmælandi Ögmundar, benti á,að einstaklingar og fyrirtæki á EES svæðinu gætu keypt  slíkar jarðir hér hömlulaust og að Kínverjinn hefði geta stofnað' skúffufyrirtæki á EES svæðinu  og   verið frjáls að því að kaupa jörðina.Ljóst var í þættinum,að Ögmundur var fremur andstæður áformum Kínverjans um jarðarkaup.Hann sá ekkert jákvætt við þau. Ef til vill eru VG í grunninn andstæð fjárfestingum  erlendra aðila á Íslandi enda þótt slíkar fjárfestingar séu lykillinn af auknum hagvexti hér og bættum lífskjörum.Jóhanna forsætisráðherra og Katrín  iðnaðarráðherra hafa tekið jákvætt í beiðni Kínverjans og telja,að nægileg vörn sér í íslenskum lögum til þess að gæta hagsmuna Íslands.Ef Ögmundur synjar beiðni Kínverjans gæti málið því dregið dilk á eftir sér og ógnað stjórnarsamstarfinu. Krafan um erlenda fjárfestingu á Íslandi verður æ háværari og í þingliði Samfylkingarinnar eru þingmenn,sem ekki munu sætta sig við það að VG stöðvi slíka fjárfestingu.

Ég tel,að samþykkja eigi beiðni Kínverjans með því skilyrði,að hann afsali sér vatnsréttindum og öðrum auðlindaréttindum í jörðu.

 

Björgvin Guðmundsson

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband