AGS: Mikill árangur náðst í efnahagssamstarfinu

Efnahagsbatanum á Íslandi er stefnt í voða vegna óróanum á alheimsmarkaði, sagði sendifulltrúi Alþjóðagjaldeyrissjóðsins á Íslandi í tilefni af því að samstarfi Alþjóðagjaldeyrissjóðsins og ríkisstjórnar Íslands er formlega lokið. Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn segir að meginmarkmið samstarfsins hafi náðst.

„Það hefur mikill árangur náðst í efnahagssamstarfinu... sem má þakka því að ríkisstjórnin hefur helgað sig efnahagsáætluninni og þolgæði Íslendinga eftir þessa gríðarlegu kreppu," sagði Julie Kozack, sendifulltrúi Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, á blaðamannafundi.

Hún segir að efnahagslífið á Íslandi sé enn brothætt. Hræringar á mörkuðum ytra hafi ekki snert Ísland enn sem komið er en ef ástandið á alheimsmörkuðum verði enn erfitt muni það koma niður á Íslandi á endanum.

Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn fagnar ákvörðun Seðlabanka Íslands um að hækka stýrivexti fyrr í þessum mánuði vegna aukinnar verðbólgu. En Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn hvetur líka til þess að ýtt verði undir frekari fjárfestingu í landinu. Tafir á fjárfestingaverkefnum kom niður á hagvexti.

Þá segir Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn að áfram verði að vinna að því að skera niður fjárlagahallann en verkið sé ekki eins ærið og áður. Hallinn á rekstri ríkissjóðs verði um 4% í ár. Þá verði jafnframt að vinna að því að aflétta gjaldeyrishöftum og viðhalda stöðugleika á fjármálamarkaði. Loksins gangi hraðar að endurskipuleggja skuldir fyrirtækja en áfram verði að vinna að því verkefni.

Þá hvetur Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn íslenska eftirlitsaðila til þess að veita bönkunum nægjanlegt aðhald til að þeir geti tekist á við óvænta atburði í efnahagslífinu. (visir.is)

 

Björgvin Guðmundsson


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband