Fimmtudagur, 1. september 2011
Nýtt fiskveiðiár hefst í dag. Kvótinn eykst um 20 þús. tonn
Fiskistofa hefur úthlutað aflamarki fyrir nýtt fiskveiðiár sem hefst í dag. Alls fá 612 skip úthlutað aflamarki samanborið við 637 í fyrra. Úthlutað er rúmlega 281 þúsund tonni í þorskígíldum talið en þau voru 261 þúsund tonn í fyrra.
Ríflega 500 fyrirtæki fá úthlutað nú og fá þau fimmtíu stærstu, eða tíu prósent fyrirtækjanna, um 84 prósent kvótans. HB Grandi fær, líkt og fyrri ár mestu úthlutað til sinna skipa eða ríflega tíu prósent af heildinni.
Næst kemur Samherji með ríflega sex prósent og þá Þorbjörn með 5,5 prósent.
Það skip sem fær mestan kvóta er Kaldbakur EA 1. Hann fær um 8.200 tonn eða næstum þrjú prósent af heildinni. Næstmest fær Guðmundur í Nesi eða 6300 tonn.
Ekki er mikil breyting á milli landshluta. Mest fer til skipa með heimahöfn í Reykjavík eða rúm 11 prósent af heildinni og næstmest fer til Vestmannaeyja eða 10,6 prósent.(ruv.is)
Það er athyglisvert,að 50 stærstu útgerðarfyrirtækin skuli fá 84% kvótans.Og Grandi fær 10% alls kvótans.Ekki er nú jafnt skipt.Kvótaúthlutunin,sem tekur gildi í dag gildir til eins árs.Þannig hefur þetta verið um langt skeið,að veiðiheimildum er úthlutað til eins árs í senn.En LÍÚ segir,að það stórskaði útgerðina ef hún fái úthlutað veiðiheimildum til 15-23 ja ára.
Björgvin Guðmundsson
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.