Föstudagur, 2. september 2011
Jóhanna:Mikill árangur í efnahagsmálum.Hagvöxtur 2,8% í ár
Alþingi kom saman í morgun.Forsætisráðherra,Jóhanna Sigurðardóttir,flutti skýrslu um efnahags-og atvinnumál. Síðan fóru fram umræður um skýrsluna.Jóhanna sagði,að mikill árangur hefði náðst í efnahagsmálum.Öll helstu markmið efnahagsáætlunar Íslands og AGS hefðu náðst.Hagvöxtur yrði 2,8% í ár ( aðeins 1 annað ríki OECD hefur meiri hagvöxt í ár) og kaupmáttur væri 2,6% meiri en sl. ár.Atvinnuleysið hefði minnkað og verið 6,5% í júlí.1000 atvinnulausu fólki yrði boðin skólavist.Ferðaþjónustan gengi mjög vel og yrði um metár að ræða á þessu ári.Jóhanna sagði,að mörg verkefni væru farin í gang eða að fara í gang og mundi sú aukning skapa 7000 ný störf en það mundi kosta 80-90 milljarða. Hér væru ekki meðtalin stóriðjuverkefni eða verkefni tengd virkjunum en ef þau gengju eftir mundu þau skapa jafnmörg störf eða önnur 7000.Hallinn á fjárlögum hefði verið 215 milljarðar 2008 en hann yrði aðeins 18 milljarðar næsta ár.Jóhanna sagði,að allur þessi árangur hefði náðst hér án þess að skera niður laun eða bætur almannatrygginga en það hefði verið gert í Bretlandi og á Írlandi.Skuldatryggingarálagið hefði verið 1300 punktar við upphaf kreppu en væri nú rúmir 200 punktar.
Steingrímur J.Sigfússon fjármálaráðherra talaði á svipuðum nótum og Jóhanna. Hann sagði,að gert hefði verið ráð fyrir,að ríkishallinn yrði 7,3% af landsframleiðslu í ár en hann yrði 2,5% af landsframleiðslu 2011.Steingrímur sagði,að strax eftir hrunið hefði Ísland verið útilokað af hinum alþjóðlega fjármálamarkaði.Útlit hefði verið fyrir greiðsluþrot og gjaldþrot Íslands. En alger umskipti hefðu orðið. Ísland væri á ný gjaldgegnt á alþjóðlegum fjármálamarkaði eins og komið hefði í ljós við alþjóðlegt skuldabréfaútboð,sem gengið hefði vel.Og enginn talaði lengur um gjaldþrot Íslands.Steingrímur sagði útlit fyrir að ríkið fengi alla peninga til baka sem lagðir hefðu verið í endurreisn bankanna.
Björgvin Guðmundsson
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.