Föstudagur, 2. september 2011
Þórunn Sveinbjarnardóttir hættir á þingi
Þetta er ákvörðun sem er tekin af mjög vandlega hugsuðu máli," segir Þórunn Sveinbjarnardóttir, sem tilkynnti í dag að hún segði af sér þingmennsku. Spurð hvað komi til segist hún hafa verið að bræða með sér hugmyndina í nokkurn tíma.
Ég er búin að vera á þingi í tólf ár. Mig langar að breyta til, enda ætlaði ég aldrei að gera þingmennsku að ævistarfi mínu," segir Þórunn sem hefur nám í heimspeki og siðfræði í Háskóla Íslands á næstu dögum. Hún hefur því skráð sig í skólann í sumar.
Spurð hvort hún sé sátt við Samfylkinguna svarar Þórunn: Afar sátt."
Þórunn segist ekki hætt afskiptum af stjórnmálum þó hún sé hætt á þingi.(visir.is)
Það er mikil eftirsjá af Þórunni af þingi.Ég tel,að hún hafi verið einn besti þingmaðurinn,alltaf málefnaleg og laus við allar öfgar.
Björgvin Guðmundsson
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.