Hættir Kínverjinn við?

Upplýst var í dag,að Kínverjinn ,sem vill kaupa Grímsstaði á Fjöllum yrði að fá leyfi kínverskra stjórnvalda fyrir þessari fjárfestingu.Óvíst væri hins vegar,að kínversk stjórnvöld mundu veita leyfið vegna þess uppnáms,sem orðið hefði á Íslandi vegna umsóknarinnar.Ef til vill hefur VG tekist að eyðileggja þetta mál með neikvæðri afstöððu sinni.Fram hefur komið að veittar hafa verið 24 undanþágur fyrir fjárfestingu aðila utan EES undanfarin ár.Flestir,sem fengið hafa undanþágur eru Bandaríkjamenn.Ég fæ ekki séð að betra sé að veita Bandaríkjamönnum  slíkar undanþágur en Kínverjum. Og ég fæ heldur ekki séð,að betra sé að hafa þýska eða franska fjárfesta á Íslandi en kínverska eða þá pólska eða tékkneska en  fjárfesting  aðila frá EES er frjáls hér á landi.

 

Björgvin Guðmundsson


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband