Sunnudagur, 4. september 2011
Á forsetinn að blanda sér í viðkvæm deilumál?
Forseti Íslands,Ólafur Ragnar Grímsson,hefur tekið ákveðna afstöðu til umsóknar Kínverjans,Nubo, um að fá að kaupa jörðina Grímsstaði á fjöllum.Forsetinn styður umsóknina og kveðst andvígur því að Evrópa og Bandaríkin njóti sérréttinda á sviði fjárfestinga í öðrum löndum.Forsetinn virðist hlynntur fjárfestingum Kínverja og Indverja hér.Ég er sammála rökum forsetans en ég tel hins vegar óeðlilegt að forsetinn blandi sér í viðkvæm deilumál eins og jarðakaupin á Grímsstöðum á fjöllum.Innanríkisráðherrann virðist fremur andvígur þessum jarðakaupum og þá er óeðlilegt að forsetinn taki aðra afstöðu.Forsetinn á sem þjóðhöfðingi að vera sameiningartákn.
Björgvin Guðmundsson
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.