NATO komið út fyrir sitt svið?

Uppreisnarmenn í Líbýu telja að Gaddafi, fyrrverandi einræðisherra, hafi í gær flúið frá bænum Bani Walid, um 150 kílómetra suður af höfuðborginni Trípóli.

Herlið uppreisnarmanna er skammt frá bænum og hefur hótað að ráðast á hann á hverri stundu. Að sögn sást bílalest halda frá bænum í gær og uppreisnarmenn telja að þar hafi Gaddafi og nánustu fylgismenn hans verið á ferð. Í liðinni viku var talið að Gaddafi og tveir sona hans hefðu leitað skjóls í Bani Walid, eftir að sveitir uppreisnarmanna tóku Trípólí. Belhaj, herforingi uppreisnarmanna, sagði í gær að svo virtist sem hermenn Gaddafis hefðu yfirgefið varðstöðvar við bæinn í gær og að fáni uppreisnarmanna blakti þar á ýmsum hærri byggingum.(ruv.is)

 

Það er gott,að uppreisnarmenn skuli hafa náð völdum í Lybíu og Gaddafi hrakinn frá völdum eftir 42ja ára einræðisstjórn.En ég set hins vegar spurningarmerki  við það   hvort NATO,sem er varnarbandalag,eigi að hafa afskipti af borgarastyrjöld í Afríku.Ég tel ekki. NATO gerði loftárásir á Lybíu til þess að hjálpa uppreisnarmönnum og fjöldi óbreyttra borgara lést í þessum loftásárásum.Þetta er ekki rérrlætanlegt og Ísland á ekki að styða slíkar aðgerðir NATO. Varnarbandalagið er komið út fyrir sitt svið.

 

Björgvin Guðmundsson


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband