Sunnudagur, 4. september 2011
Jóhanna hrekur aðfinnslur Samtaka atvinnulífsins
Í ræðu forsætisráðherra á Alþingi í gær 2. september lagði ráðherra ríka áherslu á að fyrirtækin í landinu færu varlega í verðhækkanir og veltu ekki launahækkunum að fullu yfir í verðlag. Benti ráðherra á að hlutur launa í landsframleiðslu hefði lækkað mikið og aldrei verið lægri.
Orðrétt segir í ræðunni:
Í því sambandi bendi ég á að hlutur launa í landsframleiðslu hefur aldrei verið lægri en nú eða um 59% samanborið við yfir 72% árið 2007. Lækkunin svarar til 13% af landsframleiðslu sem farið hafa frá launþegum til fyrirtækja, í krónum talið um 200 milljarðar króna. Það ætti að létta mörgum fyrirtækjum að standa undir kjarabótum án þess að hækkunum sé velt út í verðlagið.
Þessi orð verður Samtökum atvinnulífsins tilefni til að senda fjölmiðlum fréttatilkynningu í gær þar sem orð forsætisráðherra eru rengd.
Þær tölur sem forsætisráðherra vitnar til eru frá Hagstofu Íslands. Þær eru öllum aðgengilegar á heimasíðu Hagstofunnar (www.hagstofa.is) og bera heitið Skipting landsframleiðslu eftir framleiðsluþáttum 1973-2010.Þar kemur skýrt fram,að hlutur launa í landsframleiðslu hefur minnkað úr 72% 2007 í 59% nú.
Forsætisráðherra fór því rétt með en SA voru að vaða villur vegar.
Björgvin Guðmundsson
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook