Laugardagur, 10. september 2011
Meirihluti á móti því,að Ólafur Ragnar fari aftur í framboð
Tæplega helmingur landsmanna vill að Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, gefi kost á sér fyrir fimmta kjörtímabilið í forsetakosningum sem fara fram á næsta ári, samkvæmt skoðanakönnun Fréttablaðsins og Stöðvar 2. Alls sögðust 47,6 prósent þeirra sem afstöðu taka í könnuninni vilja að Ólafur Ragnar bjóði sig fram að nú, en 52,4 prósent eru því andvíg.
Þegar Fréttablaðið kannaði síðast afstöðu fólk til forsetans, 24. febrúar síðastliðinn, sögðust 50,2 prósent vilja að Ólafur Ragnar færi fram á ný, en 49,8 prósent vildu það ekki.
Talsverður munur er á afstöðu fólks til mögulegs framboðs Ólafs Ragnars eftir því hvaða stjórnmálaflokk það styður. Alls sögðust um 56 prósent stuðningsmanna Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokksins vilja að Ólafur Ragnar byði sig fram aftur. Um 30 prósent stuðningsmanna Samfylkingarinnar og tæp 32 prósent stuðningsmanna Vinstri grænna voru sömu skoðunar.
Íbúar á landsbyggðinni eru hlynntari framboði Ólafs Ragnars en íbúar höfuðborgarsvæðisins. Um 52,2 prósent íbúa landsbyggðarinnar vilja að hann bjóði sig fram aftur, en 45,4 prósent íbúa á höfuðborgarsvæðinu.
Hringt var í 800 manns fimmtudaginn 8. september. Þátttakendur voru valdir með slembiúrtaki úr þjóðskrá. Svarendur skiptust jafnt eftir kyni, og hlutfallslega eftir búsetu og aldri.
Spurt var: Finnst þér að Ólafur Ragnar Grímsson ætti gefa kost á sér fyrir fimmta kjörtímabilið sem forseti Íslands þegar kosið verður á næsta ári? Alls tóku 89,4 prósent afstöðu til spurningarinnar.(visir.is)
Þetta eru mikil tíðindi.Áður hafa kannanir sýnt,að meirihluti vildi fá Ólaf í framboð. En auk þess er málum svo komið,að stuðningsmenn Ólafs Ragnars eru nú aðallega í Sjálfstæðisflokknum en ekki tel ég unnt fyrir Ólaf að treysta á það fylgi. Fylgi við Ólaf í vinstri flokkunum hefur minnkað mikið. Það er að sjálfsögðu vegna þess að hann hefur verið í stríði við ríkisstjórn þessara flokka.
Björgvin Guðmundsson
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.