Þriðjudagur, 13. september 2011
Greiðslur úr lífeyrissjóði skerði ekki tryggingabætur TR
Hver verða næstu skrefin í kjarabaráttu eldri borgara? Næsta skrefið er að afturkalla kjaraskerðinguna,sem Árni Páll Árnason þáverandi félagsmálaráðherra lét lögleiða 1.júlí 2009.Þá voru kjör eldri borgara og öryrkja skert verulega vegna kreppunnar en tekið fram, að um tímabundnar ráðstafanir væri að ræða.Nú er aðeins farið að rofa til, hagvöxtur að byrja og staða ríkisfjármála hefur batnað mikið frá því bankahrunið skall á.Þess vegna er tímabært að afturkalla kjaraskerðinguna frá 1.júlí 2009.
Skerðing tryggingabóta var stóraukin 1.júlí 2009. Frítekjumark vegna atvinnutekna, sem hafði verið tæpar 110 þúsund krónur á mánuði, var fært niður í 40 þúsund krónur á mánuði.Það var sem sagt ákveðið að refsa þeim eldri borgurum, sem voru að reyna að vinna svolítið.Ég efast um, að ríkið hafi grætt mikið á þessari ráðstöfun.Margir eldri borgarar hafa hætt að vinna vegna þessa og við það missir ríkið skatttekjur.Það hefði verið óhætt að hafa frítekjumarkið óbreytt. Tilfinnanlegast var þó, að ákveðið var að láta greiðslur úr lífeyrissjóði hafa aukin áhrif á útreikning grunnlífeyris. Við þessa ráðstöfun missti mikill fjöldi eldri borgara grunnlífeyri sinn og hefur nú engan lífeyri frá almannatryggingum.Tekjur 5210 eldri borgara frá almannatryggingum lækkuðu við þetta.Mér er til efs, að þessi ráðstöfun standist jafnræðisreglu stjórnarskrárinnar.Mikill fjöldi eldri borgara fær nú ekki krónu frá almannatryggingum en hefur þó borgað til þeirra allan sinn starfsferil.Þegar almannatryggingar voru stofnaðar var tekið skýrt fram, að þær ættu að vera fyrir alla án tillits til stéttar og efnahags.Eftir breytingu þá, sem Árni Páll gerði 1.júlí 2009, eru almannatryggingar fyrir ákveðin hóp fólks en ekki fyrir alla. Það er verið að breyta tryggingunum í átt til fátækraframfærslu.Þetta gengur þvert á upphaflegt markmið almannatrygginga. Sem dæmi um það hvernig þetta hittir vissan hóp fyrir má nefna, að þegar 50 þús króna eingreiðsla var ákveðin fyrir launþega og bótaþega almannatrygginga í nýgerðum kjarasamningum var ákveðið að þeir, sem hefðu ekki grunnlífeyri fengju ekki heldur þessa eingreiðslu. Fyrst er þessi hópur strikaður út úr kerfi almannatrygginga og síðan er hann sviptur kjarabótum, sem samið er um, að launþegar og lífeyrisþegar eigi að fá.1.júlí 2009 var tekjutryggingin einnig skert beint, þar eð skerðingarhlutfall hennar var hækkað úr 38,35% í 45%. Við þetta lækkuðu tekjur 18940 eldri borgara.
Það verður að afturkalla alla kjaraskerðinguna frá 2009.En auk þess þarf að afnema með öllu skerðingu tryggingabóta vegna greiðslna úr lífeyrissjóði.Launþegar,sem greitt hafa í lífeyrissjóð allan sinn starfsferil, eiga að njóta að fullu lífeyris síns þegar þegar fara á eftirlaun.En það gera þeir ekki, ef tryggingabætur eru skertar á móti greiðslum úr lífeyrissjóði eins og nú er gert.Þessa skerðingu verður að afnema strax. Það var aldrei meiningin, þegar lífeyrissjóðirnir voru stofnaðir, að þeir mundu skerða tryggingabætur.Lífeyrissjóðirnir áttu að vera viðbót við lífeyri almannatrygginga.
Björgvin Guðmundsson
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Ég er kominn á þá skoðun að þú sért eini málsvari eldri borgara. Allt sem þú segir í þessari grein er ekkert nema sannleikur. Þegar ég segi eini málsvari eldri borgara því ekki heyrist hósta né stuna frá FEB eða LEB sem ég stóð í þeirri meiningu að hugsuðu sér að vera málsvari eldri borgara. Eftir að hafa fylgst aðeins með starfsemi FEB er ég kominn á þá skoðun að þeir sem þar stjórna séu eintómir geldingar, tala nú ekki um eldri borgara hjá XD, sem ég hef aðeins fylgst með. Allavega er alveg ljóst að þú ert sá eini sem heyrist etthvað frá um þjófnað núverandi stjórnvalda á sjóðum eldri borgara. Ég hef greitt í 60 ár í almennar tryggingar til elli árana en fæ núna úr því um 15 þúsund krónur, þetta er flott.
Spurning hvort ekki sé best að beina áróðri á eitthvað eitt þó af mörgu sé að taka.
Hef marg tekið eftir því að borgara sem ekki eru eldri borgara vita ekkert um þennan þjófnað stjórnvalda, þarf að koma þessu miklu betur á framfæri.
Baldur B.Maríusson (IP-tala skráð) 13.9.2011 kl. 11:08
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.