Könnun: Besti flokkurinn fengi 20% í þingkosningum

Rúm 20% segja það koma til greina að kjósa Besta flokkinn í næstu alþingiskosningum, samkvæmt niðurstöðum nýrrar skoðanakönnunar MMR.

Af þeim sem tóku afstöðu sögðu 21,4% landsmanna að það kæmi til greina að þeir myndu kjósa Besta flokkinn ef hann byði fram í næstu alþingiskosningum. Þetta er breyting frá könnun MMR fyrir Viðskiptablaðið í mars á þessu ári, en þá sögðu 25,5% að það kæmi til greina að kjósa Besta flokkinn ef hann byði fram til Alþingis.

Af þeim sem tóku afstöðu sögðu fleiri karlar að það kæmi til greina að kjósa Besta flokkinn heldur en konur eða 24,8% karla á móti 17,6% kvenna. Yngri einstaklingar voru einnig hlynntari framboði Besta flokksins og er það í samræmi við fyrri könnun
frá því í mars á þessu ári þó fylgi þeirra hafi minnkað nokkuð.(visir.is)

Ég efast um að Besti flokkurinn fengi 20% í þingkosningum.Flokkurinn hefur staðið sig illa í borgarstjórn og kjósendur hafa orðið fyrir miklum vonbrigðum með flokkinn.

 

Björgvin Guðmundsson


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kjartan Sigurgeirsson

Ja hérna lærir þjóðin aldrei?

Kjartan Sigurgeirsson, 16.9.2011 kl. 14:57

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband