Ísland og Reykjavík mest spennandi ferðamannastaðir 2012

Ferðaþjónusta Ísland og Reykjavík eru mest spennandi ferðamannastaðir heims árið 2012. Þetta er mat lesenda efnis frá fyrirtækinu Lonely Planet, sem er stærsti útgefandi ferðatengds efnis í heiminum. Stutt er síðan bandaríska tímaritið National Geographic valdi Ísland einnig mest spennandi áfangastaðinn 2012.

„Þetta er tvímælalaust staðfesting á því að við höfum verið að gera rétt í kynningum okkar undanfarið. Bæði með Inspired by Iceland-átakinu og svo nýja átakinu, sem er reyndar kannski ekki byrjað að hafa áhrif,“ segir Jón Ásbergsson, framkvæmdastjóri Íslandsstofu, sem hefur meðal annars það hlutverk að markaðssetja Ísland sem ferðamannastað.

„Ég held að við höfum slegið réttan tón í Inspired by Iceland með því að fá erlenda gesti til að segja frá sinni upplifun af landinu og koma þeim skilaboðum víðar en áður, til dæmis inn á samfélagsmiðlana,“ segir Jón og bætir því við að hann sé þess fullviss að útnefningar sem þessar hafi talsverð áhrif.

Lonely Planet er ástralskt fyrirtæki í eigu breska ríkisútvarpsins BBC sem gefur út bækur, tímarit, sjónvarpsþætti og fleira efni um ferðalög og ferðamannastaði.
Fyrirtækið gefur árlega út bók þar sem fjallað er um mest spennandi ferðamannastaði samtímans. Umfjöllun þess um Ísland og Reykjavík og listarnir yfir mest spennandi ferðamannastaði ársins birtast í nýútkominni 2012 útgáfu bókarinnar. Sú nýbreytni var hins vegar á gerð bókarinnar að þessu sinni að lesendum gafst færi á að kjósa sína uppáhaldsáfangastaði.

Bæði Ísland og Reykjavík höfðu nokkra yfirburði í kjörinu með alls 32 prósent og 27 prósent atkvæða hvort. Ítalía og Lissabon komu næst í kjörunum með 13 prósent og 15 prósent atkvæða. Meðal annarra landa sem komust á blað má nefna Indland, Filippseyjar, Tyrkland og Kólumbíu. Istanbúl, Barselóna, London og Bangkok voru síðan í hópi þeirra borga sem þóttu mest spennandi.

Hvorki Ísland né Reykjavík komust á topp 10 lista yfir mest spennandi lönd og borgir í fyrra.(visir.is)

Þetta eru góðar fréttir og gefa til kynna að næsta ár,2012 gæti orðið gott ferðamannaár fyrir Ísland.

 

Björgvin Guðmundsson


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband