Meirihlutinn vill halda viðræðum áfram

Í nýrri könnun sem Capacent gerði fyrir samtökin Sterkara Ísland, vildu 53,1% þeirra sem tóku afstöðu, halda aðildarviðræðum við Evrópusambandið áfram og taka afstöðu til aðildarsamnings í þjóðaratkvæðagreiðslu.

Þetta kemur fram í Fréttatímanum, sem kemur út á morgun en blaðið er komið á netið.

46,9% sögðust vilja slíta aðildarviðræðunum við ESB.

Í könnun, sem MMR gerði fyrir Andríki og sagt var frá á mbl.is í gærkvöldi, sögðust 50,5% vilja draga aðildarumsóknina til baka en 35,3% vildu halda umsókninni til streitu. 14,2% voru hvorki fylgjandi því né andvíg að draga umsókn til baka.(visir.is)

Það er athyglisvert,að kannanir MMR gefa alltaf aðra niðurstöðu en kannanir Capacent.

Björgvin Guðmundsson


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband