Sunnudagur, 20. nóvember 2011
Mikil mistök Sjálfstæðisflokksins í ESB-málum
Sjálfstæðisflokkurinn samþykkti í dag á landsfundi,að gera ætti hlé á viðræðum við ESB og ekki að halda þeim áfram nema það yrði samþykkt í þjóðaratkvæðagreiðslu.Hræddur er ég um ,að flokkurinn eigi eftir að naga sig í handabökin fyrir þessa tillögu. Ef Sjálfstæðisflokkurinn kemst í stjórn eftir næstu kosningar og ætlar að stöðva viðræður við ESB,gera hlé á þeim og láta kjósa um hvort halda eigi þeim áfram gerir flokkurinn sig að athlægi gagnvart öllum helstu viðskiptaþjóðum okkar í ESB.Alþingi samþykkti aðildarviðræður við ESB og það er fáheyrt að ætla að grípa þannig fram fyrir hendurnar á löggjafarsamkomunni. Það er einnig alveg út í hött að hafa þjóðaratkvæðagreiðslu um það hvort haldi eigi viðræðum áfram eða ekki.Þjóðin hefur engar forsendur til þess að greiða atkvæði um það.Til þess að þjóðin geti greitt atkvæði um málið þarf hún að hafa samningsuppkast á borðinu en það mun ekki liggja fyrir fyrr en viðræðum er lokið.
Landsfundur íhaldsins hefur verið nokkuð sérstakur. Fundurinn hefur verið að hylla fyrrum flokksleiðtoga eins og Davíð og Geir og svo hefur virst á fundinum sem flokkurinn væri enn í gamla tímanum og vildi taka upp fyrri vinnubrögð eins og þau tíðkuðust fyrir hrun.Fundurinn hefur einkennst af öfgum í garð Samfylkingarinnar og ríkisstjórnarinnar.Landsfundurinn sér ekki að ríkisstjórnin hafi gert neitt jákvætt þó erlendir hagfræðingar telji að Íslandi hafi gengið vel að komast úr úr kreppunni. Hagvöxtur er 2,5-3% í ár og mikið meiri en í grannlöndum okkar,atvinnuleysi er minna hér en í nágrannalöndum okkar og tekist hefur að ná niður ríkissjóðshallanum þannig að stutt er í að jafnvægi náist. Ekkert af þessu sér Sjálfstæðisflokkurinn. Flokkurinn hefur sturlast við að missa völdin og nú er baráttan sú ein að ná völdum aftur en stefnan skiptir minna máli.
Bjarni Benediktsson var endurkosinn formaður með 55% atkvæða. Hanna Birna fékk 44%.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.