Mánudagur, 21. nóvember 2011
Kjaraskerðing aldraðra og öryrkja frá 2009 verði afturkölluð
Á miðju ári 2009 var lögfest veruleg skerðing á kjörum aldraðra og öryrkja: Frítekjumark tryggingabóta vegna atvinnutekna var lækkað úr 110 þús.kr. í 40 þús. kr. á mánuði,ákveðið var að láta greiðslur úr lífeyrissjóði hafa áhrif við útreikning grunnlífeyris almannatrygginga og frekari kjaraskerðing var lögfest.Við það að breyta útreikningi grunnlífeyris missti mikill fjöldi eldri borgara grunnlífeyrinn og datt bókstaflega út úr kerfi almannatrygginga.Það gengur algerlega í berhögg við upphaflegan tilgang almannatrygginga um að þær eigi að vera fyrir alla án tillits til stöðu og efnahags.Ég hefi barist fyrir því að þessi kjaraskerðing frá 2009 verði afturkölluð.Á landsfundi Sjálfstæðisflokksins var samþykkt ályktun um að afturkalla ætti kjaraskerðinguna frá 1.júlí 2009.
Björgvin Guðmundsson
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 11:43 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.