70% af útflutningi okkar til ESB

Samkvæmt nýrri úttekt sem Hagstofa Íslands gerði fyrir Já Ísland eiga Íslendingar í lang mestum viðskiptum við ríki Evrópusambandsins. Á síðasta ári var 70,5% af útflutningi beint til ESB ríkjanna og þarf af um 50% til ríkja sem nota evru.

Að sama skapi var innflutningur frá ESB ríkjunum 56,2% af heildar innflutningi hingað til lands, þar af 27% frá ríkjum sem nota evru.

Séu þessar tölur bornar saman við þau lönd sem mikið hafa verið í umræðunni í tengslum við einhliða eða tvíhliða upptöku á annarri mynt kemur í ljós gífurlegur munur.(Heimasíða Samfylkingar)

Þessar tölur leiða í ljós hve viðskipti Íslands við ESB ríkin eru gífurlega mikilvæg.Það er að sjálfsögðu að mestu leyti vegna fríverslunar Íslands og ESB,að viðskiptin eru jafn mikil og raun ber vitni.

 

Björgvin Guðmundsson


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Það er ánægjulegt að við skulum eiga svona góð viðskipti við álfuna þrátt fyrir að vera ekki í ESB.  Þessar tölur eru þó afstæðar á ýmsan máta. Af álútflutningi eru tæp 40% í USD og 27% í Evrum t.d.  Mestmegnið af öllum útflutningnum fer til Hollands, sem ætti að vekja spurningar há þér. Það er nefnilega ekki sagt frá því að obbin af þessum innflutningi fer áfram frá Holland (Rotterdam t.d.) til annarra landa í álfunni, ekki bara ESB og svo út fyrir hana.

Þessi talnaleikur er ekkert nýr og búið að kveða hann niður í nokkur skipti áður, en ef þetta eiga að vera réttlætingar fyrir inngöngu í sambandið, þá er ég ekki alveg að ná pointinu. En það er jú fátt um fína drætti hjá Samfylkingunni í þessu trúboði, svo skiljanlega gera þeir sér mat úr þessu.  Ekkert vitlausara en þau rök að 80% af framhaldskólafólki geti hugsað sér frekara nám í Evrópu og þar af leiðandi ættum við að drífa okkur inn þar sem fyrst.

Jón Steinar Ragnarsson, 21.11.2011 kl. 16:01

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband