Lífeyrir aldraðra er til skammar!

Eldri borgari,sem býr með öðrum,hefur 150 þús. kr. í lífeyri á mánuði frá almannatryggingum,eftir skatt.Hvernig á að vera unnt að lifa sómasamlegu lífi af þessari fjárhæð. Það er ekki mögulegt.Þessi lífeyrir er svo lágur,að hann er til skammar.Húsnæðiskostnaður getur verið 100-120 þús. á mánuði og þá sjá allir hvað lítið er eftir fyrir mat,fatnaði og öllum öðrum kostnaði.Eldri borgarar,sem einungis hafa tekjur frá TR eiga erfitt með að gefa barnabörnum sínum afmælisgjafir og þeir geta ekki veitt sér eða maka sínum neitt.Það verður strax að hækka þennan lífeyri myndarlega. Það þolir enga bið.

Það þýðir ekkert að birta prósentur um það hvað lítill hópur ellilífeyrisþega,3-400 manns,hafi fengið mikla prósentuhækkun á 3 árum.Slíkar prósentutölur leysa  ekki málið.

 

Björgvin Guðmundsson


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband