Maraþonfundur ríkisstjórnarinnar

Ríkisstjórnin situr  á fundi í Stjórnarráðshúsinu en þar hófst fundur klukkan níu í morgun. Laust fyrir klukkan tvö var gert hlé á fundi til þess að ráðherra gætu fengið sér hádegismat og skömmu síðar var fundarhöldum fram haldið. Ástæða þessarar löngu fundarsetu mun vera sú að ríkisstjórnin vinnur nú hörðum höndum að því að afgreiða stjórnarfrumvörp í ríkisstjórninni svo hægt sé að leggja þau fyrir haustþingið sem nú stendur yfir.(visir.is)

Mörg mikilvæg mál eiga eftir að koma fram svo sem nýtt kvótafrumvarp en gamla kvótafrumvarpið  sætti mikilli gagnrýni og er tæpast brúklegt.Ég tel,að nýja kvótafrumvarpið eiga að kveða á um að nær allar aflaheimildir verði seldar á frjálsum uppboðsmarkaði.Eitthvað lítið magn mætti vera í pottum. Hugsanlega mætti setja veiðiheimildir á markað í áföngum.

 

Björgvin Guðmundsson


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sæll Björgvin. Ég er alveg sammála þeér að það þarf að koma fram nýtt og betra kvótafrumvarp þar sem kvótinn verði reglulega afskrifaður á 15 til 20 árum og að nær allar aflaheimildir verði síðan seldar á frjálsum uppboðsmörkuðum. En mikið er ég nú hræddur um að þessari sundruðu Ríkisstjórn takist að klúðra þessu kvóta máli, kannski eina stór málinu þar sem þeir hafa mikinn meirihluta þjóðarinnar að baki sér og þeir gætu náð sér í prik og aukinn styrk og trú þjóðarinnar.

Nei því miður þá hefur mestur tími og streð þessarar Ríkisstjórnar og ráðuneytana farið í þessa vonlausu ESB umsókn og aðildarferlið og jafnframt að deila um hana innbyrðis og við Þingið og þjóðina sjálfa.

Í þessu ESB máli er lang stærstur hluti þjóðarinnar algerlega andsnúinn ESB aðild og allir stjórnmálaflokkarnir fyrir utan Samfylkinguna hafa lýst því yfir að þeir telji hagsmunum þjóðarinnar betur borgið utan ESB.

Réttast væri að leggja þessa ESB umsókn í salt og hætta að sundra þjóðinni meira en orðið er og fara að snúa sér að alvöru málum sem eru aðkallandi og skipta þjóðina svo miklu meira máli !

Gunnlaugur Ingvarsson (IP-tala skráð) 22.11.2011 kl. 17:32

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband