Mikil óánægja leikskólakennara

Félag leikskólakennara mótmælir harðlega þeirri ákvörðun Borgarráðs frá því í morgun að svipta leikskólakennara svokölluðu neysluhléi. Í yfirlýsingu frá félaginu segir að greiðslurnar falli ekki niður hjá neinni annarri starfstétt hvorki hjá leiðbeinendum sem eru innan raða Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar, Eflingar eða innan vébanda BHM og ekki hjá aðstoðarleikskólastjórum sem eru í Félagi stjórnenda leikskóla.

„Rökin fyrir þessu eru þau að Félag leikskólakennara hafi gert svo góðan kjarasamning í haust," segir ennfremur. „Með sömu rökum væri hægt að segja að leikskólastjórar hafi einu sinni gert svo góðan kjarasamning að réttlætanlegt sé að lækka laun þeirra. Félag leikskólakennara mótmælir harðlega þessari meðferð og mun leita allra löglegra leiða til að koma í veg fyrir þetta óréttlæti.“

„Leikskólakennarar í Reykjavík eru sturlaðir af reiði!“ segir að lokum.(visir.is)

Ég tel það mjög óeðlilegt,að borgarráð skuli svipta leikskólakennara neysluhléi.Og enn óeðlilegri er rökstuðningurinn.Neysluhléið hefur verið notað til þess að aðstoða börnin í matartímum og til þess að koma þeim í svefn á eftir.Eiga leikskólakennarar að hætta að veita börnunum þessa aðstoð?

 

Björgvin Guðmundsson

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband