Föstudagur, 25. nóvember 2011
Ögmundur neitaði Nubo
Ögmundur Jónasson, innanríkisráðherra, neitaði að Huang Nubo að kaupa jörðina á Grímsstöðum á Fjöllum. Hann tilkynnti þetta á ríkisstjórnarfundi í dag.
Hann sagði við blaðamenn að eignarhaldsfélag Nubos hefði ekki uppfyllt lög um afnot og eignarrétt og að ef ráðuneytið hefði fallist á undfanþáguna hefði það í reynd haft í för með sér að lögin sem um ræðir hefðu verið felld úr gildi.
Þá sagði Ögmundur ennfremur að ef hann samþykkti umsóknina hefði ráðuneytið þurft að samþykkja allar umsóknir utan EES í kjölfarið. Þá segir í tilkynningu frá ráðuneytinu að stærð jarðarinnar sem Huang vildi kaupa hefði einnig haft áhrif.(visir.is)
Ég tel,að þetta hafi verið röng ákvörðun hjá Ögmundi. Það átti að leyfa Nubo að kaupa landið,reisa hótel og efla ferðamannaiðnað í landinu. Ráðuneytið átti að ræða við Nubo,semja við hann um að kaupa minna land og breyta félagi sínu þannig að það uppfyllti öll skilyrði. Ögmundur var á móti málinu frá byrjun og það var enginn áhugi á því að ræða við Nubo.Vilja Íslendingar ekki erlenda fjárfestingu í landinu?
Björgvin Guðmundsson
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.