Laugardagur, 26. nóvember 2011
Verðbólgan 5,2%
Engar breytingar urðu á vísitölu neysluverðs í nóvember en síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 5,2% og vísitalan án húsnæðis um 4,7%. Í október mældist verðbólga 5,3%.
Vísitala neysluverðs án húsnæðis lækkaði um 0,16% frá október.
Kostnaður vegna eigin húsnæðis hækkaði um 1,0% (vísitöluáhrif 0,12%). Þar af voru 0,15% áhrif af hækkun markaðsverðs en -0,03% af lækkun raunvaxta. Verð dagvöru lækkaði um 0,6% (-0,10%), segir í frétt frá Hagstofu Íslands.
Undanfarna þrjá mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 1,0% sem jafngildir 3,9% verðbólgu á ári (3,6% verðbólgu fyrir vísitöluna án húsnæðis).
Vísitala neysluverðs samkvæmt útreikningi í nóvember 2011, sem er 384,6 stig, gildir til verðtryggingar í janúar 2012. Vísitala fyrir eldri fjárskuldbindingar, sem breytast eftir lánskjaravísitölu, er 7.594 stig fyrir janúar 2012.(mbl.is)
Þetta er alltof mikil verðbólga á þeim tíma,þegar alger lægð er í efnahagslífinu.Gera þarf ráðstafanir gegn verðbólgunni. Ekki er unnt að stóla á að verðbólgan lækki af sjálfu sér.Spurning er hvort vaxtahækkanir Seðlabankans auki verðbólgu öfugt við það sem ætlað er að ná fram. Vaxtahækkun viðskiptabanka getur hæglega farið út í verðlagið.
Björgvin Guðmundsson
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Þú hefur verið ötull talsmaður okkar ellilífeyrisþegar, Björgvin, og nú langar mig að vekja athygli þína á tillögum Lilju Mósesdóttur, hagfræðings, um skattlagningu inngreiðslna í lífeyrissjóðina. Jafnframt hefur hún áður krafist þess að sjóðirnir greiði fjármagnstekjuskatt. Fáir virðast hafa áhuga á að svara fyrir sjóðfélagana í þessu máli, en verði af þessu, sem vel gæti orðið í hrossakaupum pólitíkusa, þá yrði þarna um hrikalega eignaupptöku að ræða frá lífeyrisþegum með því að láta þá greiða með þessum hætti margfalda skatta á við það sem eru af almennum launatekjum. Lilja virðist af einhverjum óskiljanlegum ástæðum vilja leggja sjóðssöfunarkerfið niður og taka upp gegnumstreymiskerfi. Gegnumstreymiskerfið er núna að koma þeim Evrópuríkjum, sem það nota, á kaldan klaka efnahagslega. Lilja sér ofsjónum yfir þeim fjármunum, sem eru í sjóðunum nú um stundir, en gleymir því, að þeir eru í hápunkti sjóðssöfnunarinnar nú um stundir, þegar jafnvægi kemst á aldursdreifingu innan þeirra mun stærð þeirra minnka mikið. Af einhverjum ástæðum horfir Lilja framhjá því, að sjóðirnir eru í eigu sjóðfélaganna.
Þorkell Guðbrandsson (IP-tala skráð) 27.11.2011 kl. 13:19
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.