Nýtt kvótafrv.: Jón Bjarnason slakar enn á fyrir útgerðinni

Starfshópur á vegum Jóns Bjarnasonar sjávarútvegsráðherra hefur skilað nýjum tillögum að breytingum á núverandi lögum um fiskveiðistjórn.Er þar enn meira slakað á fyrir útgerðinni.Í fyrri tillögum (kvótafrumvarpi hinu stærra) var gert ráð fyrir að útgerðarmenn gætu fengið veiðiheimildir á leigu  til 15 ára með möguleika á framlengingu í 8 ár en nú er lagt,að nýtingartíminn verði 20 ár með möguleika á framlengingu í 15 ár.Fyrningarleiðin,sem stjórnarflokkarnir boðuðu í þingkosningunum og þýddi að innkalla átti aflaheimildir á 20 árum og endurúthluta á réttlátan hátt,þannig að allir ættu möguleika á að fá veiðiheimildir hefur breyst í það að afhenda á núverandi kvótahöfum aflaheimildirnar til 20 ára. Þetta eru mestu svik á kosningaloforðum í sögunni.Í dag hafa útgerðarmenn kvótana aðeins til eins árs í senni.Það á líka að slaka á varðandi veðsetningar og framsal. Ekki er lengur bannað að veðsetja aflaheimildir og framsal nú leyft með skilyrðum. Undanhald stjórnarflokkanna er samkvæmt þessu algert en það hófst í svokallaðri sáttanefnd undir forustu Guðbjarts Hannessonar,þegar fulltrúar LÍÚ neituðu að mæta. Þá lagði meirihlutinn í nefndinni niður rófuna. Í starfshópnum nú var m.a. Atli Gíslason þingmaður,sem sagt hefur sig úr VG en hann var alltaf á móti fyrningarleiðinni.Vonandi tekur alþingi í taumana og leiðréttir þennan óskapnað.

 

Björgvin Guðmundsson


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband