Sunnudagur, 27. nóvember 2011
Kvótafrv. tekið af Jóni Bjarnasyni
Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra segir að frumvarpsdrög Jóns Bjarnasonar sjávarútvegsráðherra um breytingar á fiskveiðistjórnunarkerfinu, séu alfarið á hans ábyrgð. Frumvarp ráðherrans sé ekki unnið í samráði við ríkisstjórnina, og muni aldrei verða lagt fram sem stjórnarfrumvarp.
Jóhanna gagnrýnir vinnubrögð Jóns harðlega, hann hafi haldið ríkisstjórninni utan við málið.
Sjávarútvegsráðuneytið hefur birt vinnuskjöl starfshóps, sem Jón Bjarnason sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra fól að endurskoða lagafrumvarp hans um breytingar á fiskveiðistjórnunarkerfinu, sem hlaut falleinkunn í þinginu í vor og var harðlega gagnrýnt. Ríkisstjórnin ákvað á föstudag að taka málið af Jóni Bjarnasyni og fól ráðherranefnd að fara yfir breytingar á lögum um stjórn fiskveiða, en hana skipa Katrín Jakobsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra og Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra.
Þetta vinnuskjal eða drög að frumvarpi er alfarið á ábyrgð Jóns Bjarnasonar," segir forsætisráðherra. Jón hefur haldið allri ríkisstjórninni og þingflokkunum utan við þessa vinnu þrátt fyrir ítrekaðar óskir okkar um að koma að þessu máli og hunsað aðkomu annarra úr stjórnarliðinu að þessu verki. Þetta eru auðvitað vinnubrögð sjávarútvegsráðherra sem eru algjörlega óásættanleg og ekki boðleg í samskiptum flokkanna."
Forsætisráðherra segir að frumvarp Jóns Bjarnasonar um breytingar á fiskveiðistjórnunarkerfinu sé ekki unniðí samráði við ríkisstjórnina.
Ríkisstjórninni var kynnt þetta vinnuskjal síðast liðinn þriðjudag í fyrsta sinn og þá höfðum við ekki komið að þessu máli í þrjá mánuði og ófáanlegur til að kynna okkur með einum eða öðrum hætti á hvaða leið hann er. Nú þegar hann kynnir loksins ríkisstjórninni þetta á þriðjudaginn sýnist mér að ráðherrann sé kominn ansi fjarri stefnu flokkanna í sjávarútvegsmálum og ljóst að þetta frumvarp óbreytt verður aldrei lagt fram sem stjórnarfrumvarp.(ruv,.is)
Ríkisstjórnin hefur nú tekið málið af Jóni Bjarnasyni.
Björgvin Guðmundsson
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.