Sunnudagur, 27. nóvember 2011
Björn Valur: Staða Jóns Bjarnasonar er vond
Björn Valur Gíslason þingflokksformaður Vinstri grænna gagnrýnir vinnubrögð Jóns Bjarnasonar sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra í tengslum við drög að nýju kvótafrumvarpi. Ráðherra hafi sniðgengið þingflokkinn, og staða hans sem ráðherra sé vond.
Jón Bjarnason sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra kynnti drög að nýju kvótafrumvarpi á ríkisstjórnarfundi fyrir helgi. Samkvæmt heimildum fréttastofu var hart tekist á á fundinum vegna frumvarpsins, og var málið tekið af ráðherra og sérstök ráðherranefnd skipuð til að semja nýtt frumvarp um stjórn fiskveiða. Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra gagnrýndi Jón Bjarnason harðlega í hádegisfréttum RÚV. Unnið hafi verið að nýju kvótafrumvarpi án samráðs við ríkistjórnina, og það myndi aldrei verða að stjórnarfrumvarpi.Björn Valur Gíslason þinflokksformaður Vinstri grænna tekur í sama streng. Ráðherra hefur sjálfur birt drög að því sem hann kallar frumvarp til laga um stjórn fiskveiða á heimasíðu ráðuneytisins. Það kom mér og öðrum í þingflokknum að hann skyldi gera það enda höfðum við enga vitneskju um að slíkt væri að gerast. Hann hefur ekki rætt þetta í þingflokki Vinstri-grænna eða borið sig upp við þingmenn Vinstri-grænna um þetta mál, segir Björn Valur. Mér finnst þetta vond vinnubrögð og ekki til eftirbreytni. Við munum ræða þetta í þingflokki Vinstri-grænna á morgun.
Aðspurður um stöðu Jóns sem ráðherra svarar Björn Valur: Þetta er eins og með vinnubrögðin, hans staða hlýtur að vera jafn vond. Við það bætir Björn. Það hlýtur að vera erfitt að vera í þeirri stöðu að vera að vinna framhjá sínum eigin þingflokki og þingmönnum. Hann rétt eins og er gegnir trúnaðarstörfum í umboði þingflokksins.
Björn Valur treystir sér ekki til að svara því hvort Jón eigi að segja af sér. Ég veit ekki hvað ég á að segja um slíkt en hann verður að gera okkur, sem skipuðum hann grein fyrir því,hvað hann er að gera.( ruv.is)
Björgvin Guðmundsson
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:46 | Facebook
Athugasemdir
Það er nú varla mikið þó einn ráðherra vinni eitthvað á skjön við ríkisstjórnina þegar flokkur vinnur í sumum málum a.m.k. þvert á vilja meirihluta flokksmanna og þeirra sem kusu flokkinn....
En næstu dagar og vikur verða áhugaverðar í íslenskri pólitík..... alla vega talsverðrar athygli verðar....!
Ómar Bjarki Smárason, 27.11.2011 kl. 23:40
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.