Þriðjudagur, 29. nóvember 2011
Á Jón Bjarnason að segja af sér?
Ríkisstjórnin hangir á bláþræði. Það er vegna þess,að mikil óánægja ríkir með störf Jóns Bjarnasonar í báðum stjórnarflokkunum.Forsætisráðherra gagnrýndi Jón harðlega og sagði,að hann hefði neitað öllu samráði við ríkisstjórnina og stjórnarflokkana við undirbúning nýs kvótafrumvarps.Björn Valur formaður þingflokks VG sagði,að Jón hefði ekki haft neitt samráð við þingflokk VG.Eftir hörð ummæli forsætisráðherra og Björns Vals um Jón Bjarnason bjuggust flestir við að Jón mundi segja af sér.En Jón situr sem fastast þó hann njóti hvorki trausts Jóhönnu né Steingríms. Þau hafa nú fengið fullt umboð þingflokka sinna til þess að gera breytingar á ríkisstjórninni.
Jón Bjarnason hefur dregið lappirnar í kvótamálinu frá fyrstu byrjun. Hann virðist aldrei hafa fylgt stefnu stjórnarflokkanna um fyrningu aflaheimilda. Hann lagði fram stóra kvótafrumvarpið,sem gerði ráð fyrir að afhenda kvótagreifunum aflaheimildir á silfurfati til 15-23 ja ára í stað eins árs í senn eins og nú er. Og nú hefur hann bætt um betur og lengt tímann sem kvótagreifarnir eiga að fá að hafa aflaheimildir upp í 20-35 ár.Þetta er eins langt frá stefnu stjórnarflokkanna eins og hugsast getur. Hann má hætta í stjórninni mín vegna.
Björgvin Guðmundsson
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.