Miðvikudagur, 30. nóvember 2011
Þjónustujöfnuður hagstæður um 27,3 milljarða
Útflutningur á þjónustu á þriðja ársfjórðungi 2011 var, samkvæmt bráðabirgðatölum, 108,6 milljarðar en innflutningur á þjónustu 81,4 milljarður króna. Þjónustujöfnuður við útlönd á þriðja ársfjórðungi var því jákvæður um 27,3 milljarða króna.
Samgöngur er stærsti þjónustuliður í útflutningi á þjónustu og afgangur vegna þeirrar þjónustu var um 22,5 milljarðar. Önnur þjónusta er stærsti liður í innflutningi og nam halli á þeirri þjónustu um 9,8 milljörðum. Afgangur á ferðaþjónustu var um 14,6 milljarðar.(Hagstofan)
Björgvin Guðmundsson
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.