Miðvikudagur, 30. nóvember 2011
Öryrkjabandalagið krefst þess,að ríkisstjórnin standi við gerða samninga
Formaður Öryrkjabandalagsins hefur skrifað öllum þingmönnum og krafist þess að staðið verði við gerða samninga. Hann segir svo m.a.:
ÖBÍ krefst þess að ríkisstjórnin hverfi þegar í stað frá áformum sínum um enn frekari skerðingar á lífskjör öryrkja fjórða árið í röð. Áratuga löng réttindabarátta öryrkja hefur verið færð aftur um fjölda ára.
Í frumvarpi til fjárlaga árið 2012 er gert ráð fyrir að hækkun bóta almannatrygginga verði í samræmi við almenna hækkun kjarasamninga eða 3,5%. Sú krónutöluhækkun lægstu launa, sem kjarasamningar gera ráð fyrir, að fjárhæð 11.000 kr. er því ekki tryggð. Áætluð hækkun er einnig mun lægri en ákvæði 69. gr. almannatryggingalaga segir til um hvernig lífeyrisgreiðslur skulu breytast árlega.
Í yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar tengdri kjarasamningum frá 5. maí 2011 segir að stjórnvöld muni endurskoða bætur almannatrygginga með hliðsjón af niðurstöðum kjarasamninga milli ASÍ og SA. Hliðstæð hækkun til örorkulífeyrisþega og launþega á lægstu töxtum frá og með 1. febrúar nk. ætti að vera um 6,5%.
Minnt er á stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar en þar segir orðrétt:
Mikilvægasta verkefni velferðarþjónustunnar og leiðarljós við forgangsröðun í núverandi aðstæðum er að vernda hag og stöðu barna og fjölskyldna þeirra, sem og þeirra sem lakast standa í samfélaginu.
Þrátt fyrir yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar munu eftirtaldir bótaflokkar ekki hækka ef fjárlögin verða samþykkt í óbreyttri mynd sem tilheyra lögum um almannatryggingar og lögum um félagslega aðstoð:
- Mæðra- og feðralaun
- Umönnunargreiðslur
- Meðlagsgreiðslur
- Barnalífeyrir
- Barnalífeyrir vegna náms
- Dagpeningar slysabóta
- Dánarbætur vegna slysa
- Uppbætur vegna reksturs bifreiða
Um raunskerðingu er að ræða sem kemur sérlega illa við fjölskyldufólk og fólk með lágar tekjur. ÖBÍ mótmælir þessum skerðingum harðlega og bendir á að umræddar greiðslur eru ætlaðar til að mæta kostnaði sem í mörgum tilvikum tengist börnum og fjölskyldum þeirra. Verði uppbót vegna reksturs bifreiða fryst 2012 mun það bitna sérstaklega hart á hreyfihömluðu fólki en samkvæmt upplýsingum FÍB hefur rekstur bifreiða hækkað um 53%, frá janúar 2007 til apríl 2011, á meðan uppbótin hefur einungis hækkað um 9%.
Þá er gert ráð fyrir að öll frítekjumörk verði fryst 2012, líkt og verið hefur frá 1. janúar 2009, sem þýðir enn meiri lækkun á ráðstöfunartekjum fjölda manns.
Að miklu leyti á framangreint við aldraða einnig. Ég tek undir bréf Guðmundar Magnússonar.
Björgvin Guðmundsson
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.