Fimmtudagur, 1. desember 2011
Fjárlögin:Mikil óánægja með niðurskurð í velferðarkerfi
Fjárlagafrumvarpið var afgreitt til 3.umræðu í gær á alþingi.Mikil óánægja kom fram hjá þingmönnum með niðurskurð í heilbrigðis-og velferðarkerfi.Margir stjórnarþingmenn kváðust ætla að bíða með endanlega afstöðu til 3.umræðu.Þeir vilja að dregið verði enn úr niðurskurði í velferðarkerfi en nokkuð var dregið úr niðurskurði í helbrigðiskerfinu. Þó hefi ég ekki orðið var við að hætt hafi verið við að leggja niður líknardeild Landsspítala.Hins vegar er nú talað um að setja á fót öldrunardeild við Landakot.Ef það er unnt ætti eins að vera mögulegt að hætta við lokun líknardeildar Landakots.Ekki hefur heldur verið aukið framlag til þess að standa við gerða samninga um hækkun bóta aldraðra,öryrkja og atvinnulausra. Það er enn talað um 3,25% hækkun næsta ár enda þótt ASÍ telji að hækkunin eigi að vera 6,5%.Ég tel túlkun ASÍ rétta en auk þess þarf nú að afturkalla kjaraskerðingu lífeyrisþega frá miðju ári 2009. Hún átti að vera tímabundin og því þarf að afturkalla hana í síðasta lagi frá miðju næsta ári. Það er krafa eldri borgara.
Björgvin Guðmundsson
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.