Fimmtudagur, 1. desember 2011
Miklar verðhækkanir í verslunum
Verð vörukörfu ASÍ hefur hækkað frá í júní hjá sjö af níu verslanakeðjum þar sem verðlagseftirlit Alþýðusambands Íslands kannaði vöruverð.
Mest var hækkunin hjá Nettó, 5,6 prósent, og Tíu-ellefu, 5,2 prósent. Einu verslanirnar þar sem vörukarfan lækkaði milli mánaða eru Hagkaup og Nóatún. Hún lækkaði um 1,2 prósent í Hagkaupum og 2,4 prósent í Nóatúni. Vörukarfan hækkaði um 1,6 prósent í Bónus, 1,9 prósent í Ellefu-ellefu, 3,3 prósent í Krónunni, 3,7 prósent í Samkaupum-Strax og 4,6 prósent í Samkaupum-Úrvali.
Vörum í vörukörfu ASÍ er skipt í átta vöruflokka. Verð hefur lækkað í tveimur til fjórum vöruflokkum í öllum verslanakeðjum nema Tíu-ellefu þar sem verð í öllum vöruflokkum hafa hækkað.
Stjórnendur Víðis og Kosts völdu að taka ekki þátt í verðkönnuninni(ruv,is)
Ljóst er,að herða þarf verðlagseftirlit til muna. Þegar gengi krónunnar styrkist svíkjast verslanir um að lækka verðið.En þegar gengið fellur flýta verslanir sér að hækka verðið.Samkeppniseftirlitið verður að taka upp eftirlit með því að verðið lækki alltaf þegar gengið styrkist.
Björgvin Guðmundsson
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.