Fimmtudagur, 1. desember 2011
Sjálfstæðisflokkur bætir við sig fylgi
Fylgi Sjálfstæðisflokksins hefur aukist um tvö prósentustig í nóvember og mælist nú 38 prósent samkvæmt nýjum þjóðarpúlsi Gallup. Flokkurinn hefur ekki mælst með meiri stuðning síðan í febrúar 2008, nokkru fyrir hrun.
Um 22 prósent kjósenda styðja Samfylkinguna og tæp fimmtán prósent styðja Framsóknarflokkinn. 13,5 prósent styðja Vinstri hreyfinguna grænt framboð en stuðningur við þann flokk hefur ekki mælst minni síðan í júlí árið 2007. Einungis tvö prósent styðja Hreyfinguna. Hins vegar segjast tíu prósent myndu styðja önnur framboð og fimmtán prósent myndu skila auðu eða sleppa því að kjósa.(ruv.is)
Sennilega stafar fylgisaukning Sjálfstæðisflokksins af landsfundinum sem hlaut mikla fjölmiðlaumfjöllun.Búast má við,að sú aukning gangi til baka.
Björgvin Guðmundsson
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.