Föstudagur, 2. desember 2011
Eldri borgarar fá algera hungurlús
Eldri borgari,sem er í hjónabandi eða í sambúð fær 150.170 kr. greiddar á mánuði frá almannatryggingum eftir skatt í lífeyri. Þetta er miðað við,að viðkomandi hafi ekki neinar aðarar tekjur.Stjórnvöld hafa haldið því fram að undanförnu,að mjög miklar hækkanir hafi orðið á lífeyri aldraðra frá árinu 2008.En staðreyndin er sem sagt þessi: 150 þús. kr.á mánuði eftir skatt hafa þeir,sem búa með öðrum.Þeir sem búa einir hafa örlítið meira eða 167 þús.kr. eftir skatt.En þeir eru aðeins 3-400 talsins.
Telja menn þetta viðunandi? Telur ríkisstjórnin þetta viðunandi? Eiga þeir,sem byggt hafa upp þetta land og komnir eru á eftirlaun að hafa 150-170 þúsund á mánuði sér til lífsviðurværis og fyrir öllum útgjöldum.Það sér hver maður,að þetta er óásættanlegt.Aðeins húsnæðiskostnaður er í mörgum tilvikum 100-120 þús. á mánuði og meira.Þegar sá kostnaður hefur verið greiddur er lítið eftir fyrir öllum öðrum útgjöldum,matvælum,fatnaði,rekstri bíls,síma og tölvu o.s. frv.Hagstofan segir,að meðaltalsneysluútgjöld einstaklinga séu 290 þús. á mánuði og dæmigert neysluviðmið er hið sama.Samkvæmt því er lífeyrir aldraðra frá almannatryggingum algerlega úr tengslum við raunveruleikann.Þetta verður að leiðrétta og það strax.
Björgvin Guðmundsson
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.