Laugardagur, 3. desember 2011
Árni Páll verður að vera áfram í stjórninni
Orðrómur hefur verið á kreiki undanfarið um það,að ætlunin sé að setja Árna Pál Árnason út úr ríkisstjórninni.Ég tel,að það væru mikil mistök,ef hann væri settur út úr stjórninni.Árni Páll hefur staðið sig mjög vel sem efnahags-og viðskiptaráðherra,m.a. í Icesave málinu.Hann hefur mjög góða þekkingu á efnahags-og viðskiptamálum og m.a. á Evrópusambandinu.
Ég var ekki ánægður með aðgerðir hans í málefnum aldraðra og öryrkja,þegar hann var félags-og tryggingamálaráðherra.En ég viðurkenni,að þar var hann að framkvæma stefnu ríkisstjórnarinnar varðandi niðurskurð á ríkisútgjöldum.Árni Páll hefur haft mjög ákveðnar skoðanir í efnahagsmálum og verið óhræddur að opinbera þær. Ekki má refsa honum fyrir það. Það er kostur að stjórnmálamenn hafi ákveðnar skoðanir og þori að birta þær.
Björgvin Guðmundsson
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.