Mánudagur, 5. desember 2011
ASÍ hótar uppsögn samninga
Þegar eitt af meginmarkmiðum samningsins er í uppnámi er spurning líka hvort okkur er sætt inni í þessum samningum, segir Gylfi Arnbjörnsson, forseti Alþýðusambands Íslands. Forsvarsmenn sambandsins eru mjög ósáttir við að bætur almannatrygginga hækki ekki í takt við laun um áramót.
Forysta ASÍ fundaði með formönnum stjórnarflokkanna, þingflokksformönnum stjórnarflokkanna og formönnum og varaformönnum fjárlaganefndar og efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis á föstudag. Þar sagði forystusveit ASÍ forystumönnum stjórnarflokkanna að verði áform stjórnarflokkanna um takmarkaða hækkun bóta að veruleika geti það haft alvarleg áhrif á kjarasamninga. ASÍ verður að ákveða fyrir 20. janúar næst komandi hvort kjarasamningum verði sagt upp eða ekki.
Gylfi segir að það hafi verið ein af meginforsendum kjarasamninga að jafna lífeyrisréttindi og að ASÍ hafi talið sig hafa fyrirheit ríkisstjórnarinnar fyrir því að sú bætur hækkuðu í takt við laun, sé verði ekki raunin miðað við núverandi áform stjórnvalda. Við munum funda með okkar félögum, við þurfum fyrir 20. janúar að taka ákvörðun um endurnýjun, segir Gylfi um næstu skref. Það er viðfangsefni janúarmánaðar að fara yfir samninga, segir Gylfi og þá ráðist hvort samningarnir standi eða ekki (ruv.is)
Björgvin Guðmundsson
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 15:00 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.