Miðvikudagur, 7. desember 2011
Stýrivextir óbreyttir
Nýjustu hagtölur staðfesta efnahagsbata hérlendis þrátt fyrir samdrátt í heiminum segir seðlabankastjóri. Vextir bankans verða óbreyttir. Stýrivextir eru því áfram 4,75% og innlánsvextir, 3,75%
Síðasta vaxtaákvörðun var 2. nóv. Þá ákvað Seðalbankinn að hækka vexti um 0,25 prósentustig.
Í yfirlýsingu peningastefnunefndar segir að nýjustu hagtölur séu í meginatriðum í takt við síðustu spá Seðlabankans. Efnahagsbatinn hafi haldið áfram, þrátt fyrir að dregið hafi úr hagvexti í heiminum og vaxandi óvissu. Verðbólga sé enn fyrir ofan verðbólgumarkmið Seðlabankans en nýleg þróun bendi til þess að því verði náð á næstu misserum.
Veruleg óvissa ríki um þann ferli nafnvaxta sem þurfi til að ná verðbólgumarkmiði. Núverandi vaxta stig virðist um það bil við hæfi á komandi mánuðum. Már Guðmundsson seðlabankastjóri sagði á kynningarfundi í bankanum í morgun að nýjustu hagtölur og tölur Hagstofunnar sem birtust í morgun um aukningu í landsframleiðslu staðfestur rækilega efnahagsbata þann sem bankinn hefði gert ráð fyrir í nýjustu efnahagsspá sinni. Þrátt fyrir verulegan samdrátt í opinberri fjárfestingur sé verulegur upptaktur í atvinnufjárfestingu og í húsnæði. Aukningin gæti verið allt að þrettán prósentum. (ruv.is)
Björgvin Guðmundsson
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.