432 milljarðar greiddir inn á Icesave

Þrotabú gamla Landsbankans hefur greitt 432 milljarða til kröfuhafa upp í forgangskröfur. Þetta kemur fram á vef slitastjórnar bankans. Stærstur hluti forgangskrafna í bú bankans er vegna innstæðna á Icesave-innlánsreikningum bankans.

Heildarforgangskröfur í bú bankans námu ríflega 1.300 milljörðum króna, en slitastjórnin hefur gefið út að hún telji eignir bankans geta dugað fyrir forgangskröfunum. Sem nær allar eru vegna innlána á Icesave, reikningunum í Bretlandi og Hollandi.

Greitt var út í evrum, pundum, dollurum og íslenskum krónum.(visir.is)

Þetta eru miklar gleðifréttir.Væntanlega mun þrotabú Landsbankans geta greitt alla Ice save "skuldina".

 

Björgvin Guðmundsson


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband