Miðvikudagur, 7. desember 2011
Fjárlögin samþykkt með 31 atkvæði
Fjárlagafrumvarp ríkisstjórnarinnar fyrir næsta ár var samþykkt sem lög frá Alþingi nú á sjöunda tímanum. Fjármálaráðherra segir frumvarpið sýna einhvern mesta bata í hagkerfi á Vesturlöndum.
31 greiddi atkvæði með frumvarpinu, þrír greiddu atkvæði gegn því og 23 sátu hjá.
Stjórnarandstaðan lagði sig fram um að hrekja þessi orð fjármálaráðherra og annarra stjórnarliða sem segja bjartari tíma framundan, nú sé komið að því að uppskera. Stjórnarandstaðan segir fjárlagafrumvarpið einkennast af sviknum loforðum og að norræna velferðarstjórnin ráðist á velferðarkerfið af fullri hörku. Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, sagði að frumvarpið gæfi enga von um bjartari tíma.
Sigríður Ingibjörg Ingadóttir, formaður fjárlaganefndar, sagði fjárlögin sýna kjark stjórnarflokkanna til að takast á við erfiða stöðu.
Það er skattað og skorið niður í stað þess að hlúa að eða byggja upp, sagði Kristján Þór Júlíusson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, að væru einkunnarorð fjárlaganna. Þá sagði Höskuldur Þórhallsson, þingmaður Framsóknarflokks, að það væri bull og vitleysa þegar stjórnarflokkarnir segðust vera að byggja upp velferðarkerfið.
Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra sagði hins vegar ljóst að allar hrakspár hefðu reynst rangar. Niðurstaðan er bærileg. Þetta er lítið frávik frá upphaflegu frumvarpi, sagði Steingrímur og kvað 20 milljarða halla staðfestingu á gríðarlegum árangri í að ná tökum á ríkisfjármálum. Afgangur yrði af regluföstum rekstri ríkisins á næsta ári. Við verðum í hópi örfárra OECD ríkja sem sínum svona tölur í okkar fjárlögum núna.
(ruv.is)
Björgvin Guðmundsson
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.