Fimmtudagur, 8. desember 2011
Launamisrétti kynjanna eykst
Sú staðreynd að launamunur kynjanna fer vaxandi var rædd á Alþingi síðdegis í gær og í morgun. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir vakti athygli á nýrri kjarakönnun félags viðskipta- og hagfræðinga sem sýni að laun kvenna lækka en á heildina litið hækka laun félagsmanna. Samkvæmt könnuninni halda laun karla áfram að hækka og mælast karlar með 19 prósenta hærri laun en konur.
Við megum ekki sofna á þessarri vakt og því miður verð ég að ítreka það að í tíð þessarar vinstri stjórnar þá hefur jafnrétti kynjanna hrakað. Þannig er það bara, sagði Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir og hún beindi orðum sínum til forsætisráðherra sem tók undir áhyggjur þingmannsins.
Þetta er auðvitað mjög alvarlegt. Þessi könnun sem hún var að vitna í, sýnir það að launamunur milli kynjanna er að vaxa. Það þarf auðvitað að taka á þessu máli. Það hefur verið reynt oft með margvíslegum hætti, ekki bara í þessarri ríkisstjórn, heldur í fyrri ríkisstjórnum. Því miður, þá verðum við að viðurkenna það að það hefur ekki skilað miklum árangri, sagði Jóhanna Sigurðardóttir.
Hún sagði fullt tilefni nú til þess að taka á þessum málum en þau snúi líka að samtökum atvinnulífsins, ríkisstjórnin geti beitt sér í málefnum opinberra starfsmanna. Nú sé fullt tilefni til að á næsta fund sem ráðherranefnd um jafnréttismál heldur, komi fulltrúi félags viðskipta- og hagfræðinga.
Þessi ríkisstjórn mun gera allt sem í hennar valdi stendur til að taka á þessum málum sagði Jóhanna Sigurðardóttir (ruv,.is)
Það eru slæmar fréttir,að launamunur kynjanna sé að aukast.Stjórnvöld verða að gera einhverjar ráðstafanir.Ljóst er,að lögum um launajafnrétti er ekki framfylgt.
Björgvin Guðmundsson
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.