Fimmtudagur, 8. desember 2011
Nýtt stjórnmálaafl myndast
Nýtt stjórnmálaafl undir forystu Heiðu Kristínar Helgadóttur og Guðmundar Steingrímssonar, héldu blaðamannafund í Norræna húsinu klukkan tvö í dag.
Þar tilkynntu þau að stjórnmálaaflið myndi bjóða sig fram fyrir næstu þingkosningar auk þess sem nýrri heimasíðu var hleypt af stokkunum þar sem flokkurinn, eða aflið, eða hópurinn eða partýið, eða bara eitthvað" eins og segir á heimasíðunni, óskar eftir tillögum að nafni.
Svo segir í yfirlýsingu á heimasíðunni að flokkurinn vilji vera opinn vettvangur eða farvegur fyrir vel meinandi einstaklinga til þess að hafa áhrif á samfélag sitt.
Við viljum grænt hagkerfi sem skapar fullt af fólki atvinnu, góða skóla og heilbrigðiskerfi, arðbæra og sjálfbæra nýtingu auðlindanna okkar, stöðugt efnahagslíf, óttalausa samvinnu við aðrar þjóðir, víðsýni, lýðræði, frjálslyndi, frið og mannúð," segir ennfremur á heimasíðunni. Á fundinum lýstu þau ESB.
Heiða Kristín og Guðmundur því meðal annars yfir að þau væru fylgjandi aðildarviðræðum Íslands við ESB.(visir,is)
Líklegt er,að þetta nýja stjórnmálaafl geti fengið talsvert fylgi í næstu kosningum. Ástæðan er sú,að margir vilja fá nýjan valkost í kosingunum.Ekki er þó líklegt,að fylgið verði jafnmikið og hjá Besta flokknum.Það,sem gerðist þá verður ekki endurtekið. En Guðmundur Steingrímsson hefur marga kosti sem stjórnmálamaður.Hann er hógvær og málefnalegur og vill breyta stjórnmálunum til betri vegar.Fulltrúar Besta flokksins geta ef til hjálpað honum að ná þessum markmiðum.
Björgvin Guðmundsson
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Reynslan af nýjum framboðum er almenn sú, að þau hafa ekki verið til frambúðar. Þó svo að töluvert fylgi hafi sópast að nýjum framboðum t.d. vegna uppgjörs í gömlu flokkunum eða upplausnarástandi eins og fylgdi bankahruninu, þá má reikna með að fylgi koðni niður fljótlega. Þetta hefur sýnt sig með fylgið að baki Jóni borgarstjóra en flokkur hans hefur komið illa út úr skoðanakönnunum.
Ljóst er að jarðveg fyrir nýjan stjórnmálaflokk þarf að vinna mjög vel og undirbúa. Það kallar á gífurlega vinnu og góður árangur hefur oft verið afrakstur stundum af miuður góðum vinnubrögðum. En slíkar aðferðir hafa komið fyrr eða síðar í koll þeim sem miður góðum aðferðum beita.
Guðm. Steingrímsson er mjög líklegur til að ná árangri. En verður það ekki til þess að auka möguleikana á því að braskaranir sem hlut áttu að máli í bankaruninu, komist til valda að nýju? Þá hefði kannski verið betur heima setið en af stað farið.
Góðar stundir!
Guðjón Sigþór Jensson, 9.12.2011 kl. 10:43
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.