Laugardagur, 10. desember 2011
Afturkalla verður strax kjaraskerðingu aldraðra og öryrkja frá 1.júlí 2009
Samkvæmt nýjum upplýsingum Hagstofunnar var hagvöxtur 3,7% á fyrstu 9 mánuðum ársins.Hagvöxtur á 3.ársfjórðungi ársins nam 4,7%. Þetta er mikið meiri hagvöxtur en áður hafði verið reiknað með.Þessar tölur eru endanleg staðfesting á því að kreppunni er lokið á Íslandi og rúmlega það.
Ríkisstjórnin skerti kjör aldraðra og öryrkja 1.júlí 2009 vegna kreppunnar.Um tímabundna ráðstöfun var að ræða.Frítekjumark vegna atvinnutekna var lækkað úr 110 þús., kr. á mánuði í 40 þús. kr. á mánuði.Skerðingarhlutfall tekjutryggingar var hækkað úr 38,35% í 45%. Og ákveðið var að við útreikning á grunnlífeyri skyldi telja greiðslur úr lífeyrissjóði með tekjum.Við þá breytingu urðu rúmlega 5000 ellilífeyrisþegar fyrir tekjuskerðingu.Og stór hópur eldri borgara féll alveg út úr kerfi almannatryggingu og fær ekki krónu þaðan þrátt fyrir greiðslur til þeirra alla starfsævi sína.Þessar tekjuskerðingar áttu aðeins að vera í gildi á meðan kreppan væri. Það er því komið að því að afturkalla þessa kjaraskerðingu og í rauninni hefði átt að gera það fyrir nokkrum mánuðum.Ekkert bólar á að ríkisstjórnin sé að afturkalla þessa kjaraskerðingu. En það verður að gerast strax um áramót.Það voru gefin fyrirheit varðandi þessar ráðstafanir,sem standa verður við.
Björgvin Guðmundsson
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 17:50 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.