Tillaga um rannsókn á einkavæðingu bankanna

Tillaga til þingsályktunar um skipan rannsóknarnefndar um einkavæðingu Fjárfestingarbanka atvinnulífsins hf., Landsbanka Íslands hf. og Búnaðarbanka Íslands hf. á árunum 1998 til 2003, var lögð fram á Alþingi í gærkvöldi. 

Tillagan var lögð fram af 18 þingmönnum úr Samfylkingunni, Vinstrihreyfingunni -grænu framboði og Hreyfingunni, auk Guðmundar Steingrímssonar. 

Fyrsti flutningsmaður er Skúli Helgason þingmaður Samfylkingarinnar. Þingmönnum annarra flokka var boðið að taka þátt í flutningi tillögunnar. 

Í tillögunni er lagt til að skipuð verði þriggja manna rannsóknarnefnd, í samræmi við lög nr. 68/2011 um rannsóknarnefndir, um þann feril er leiddi til einkavæðingar fyrrnefndra ríkisbanka.  Lagt er til að rannsóknarnefndin skili niðurstöðum eigi síðar en 1. janúar 2013. 

Í tillögunni kemur fram að nefndin skuli m.a. til umfjöllunar þá stefnu og viðmið sem lágu til grundvallar einkavæðingu bankanna og að hve miklu leyti þeim var fylgt í ákvarðanatöku og framkvæmd hennar.  Nefndin skuli upplýsa nánar um undirbúning og framkvæmd á sölu eignarhluta ríkisins í umræddum bönkum, m.a. í því ljósi að upplýsa um ábyrgð ráðherra og annarra sem komu að sölunni.  

Nefndin beri einkavæðingu íslensku bankanna saman við sölu opinberra fjármálafyrirtækja í nágrannalöndunum og leggi fram tillögur til úrbóta varðandi sölu á eignarhlutum ríkisins í framtíðinni. Nefndin leggi mat á þær afleiðingar sem framkvæmd einkavæðingar bankanna hafði fyrir íslenskt samfélag.(mbl.is)

Ég fagna þessari tillögu.Það hefði átt að vera búið að rannsaka einkavæðingu bankanna fyrir löngu.

 

Björgvin Guðmundsson


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband