Laugardagur, 4. febrúar 2012
Sjóðfélagar taki við stjórn lífeyrissjóðanna
Gríðarlegt tap lífeyrissjóðanna í kjölfar hrunsins er mikið áfall fyrir lífeyrissjóðina og stjórnendur þeirra.Alls töpuðu lífeyrissjóðirnir 480 milljörðum á tímabilinu 2008-2010. Stjórnendur lífeyrissjóðanna voru óvarkárir í fjárfestingum og fóru iðulega á svig við lögin.Eftirlit Fjármálaeftirlitsins og endurskoðenda brást.Úttektarmenn lífeyrissjóðanna telja,að fram verði að fara heildarendurskoðun á lögum um lífeyrissjóði.Það er ljóst,að stjórnendur lífeyrissjóðanna hafa ekki gætt þess að vanda nægilega vel til fjárfestinga.Þeir hafa látið glepjast af fagurgala þeirra,sem þóttust hafa fullar hendur fjár og létu sem svo,að þeir væru að gera góða hluti í viðskiptum en síðan kom í ljós,að allt var á brauðfótum.
Það verður að herða lagaákvæði um fjárfestingar lífeyrissjóða og stórauka eftirlit með þeim. Gerbreyta þarf stefnunni varðandi kjör í stjórn lífeyrissjóðanna.Taka þarf upp beina kosningu sjóðfélaga í stjórn sjóðanna. Eðlilegast er að kjósa alla stjórnarmenn beinni kosningu úr hópi sjóðfélaga.
Björgvin Guðmundsson
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.