Mánudagur, 6. febrúar 2012
Lífeyrissjóðirnir högnuðust um 472 milljarða.Tap aðeins 8 milljarðar!
Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ, segir að þrátt fyrir um 480 milljarða tap lífeyrissjóðanna vegna hrunsins þá sé útkoman ekki svo slæm þegar hagnaður sjóðanna af öðrum eignum sé tekinn með í reikninginn, en hann var 472 milljarðar. Þetta kemur fram í pistli Gylfa á vefnum Pressan.is þar sem hann fer yfir skýrslu rannsóknarnefndar um starfsemi lífeyrissjóðanna fyrir hrun, sem kynnt var sl. föstudag.
Gylfi segir m.a. í pistli sínum: Ef allir sjóðirnir eru teknir saman voru heildarfjárfestingatekjur lífeyrissjóðanna árin 2008 og 2009 - þ.e. þegar bæði er horft til fyrrgreinds taps og teknanna af öðrum eignum -neikvæðar um 8,1 milljarð króna eða 0,5% af hreinni eign til greiðslu lífeyris í árslok 2007. Þetta þýðir að á móti 480 milljarða tapi sjóðanna (sem var um 28,3% af hreinni eign) högnuðust þeir um 472 milljarða króna af öðrum eignum sínum (sem var 27,8% af hreinni eign)."
Gylfi segir vinnu rannsóknarnefndarinnar vera vandaða og faglega, og að skýrsla hennar muni nýtast til þess að bæta lífeyrissjóðakerfið til framtíðar litið.
(visir.is)
Þessar upplýsingar Gylfa eru athyglisverðar.Það var að vísu búið að koma fram,að Lífeyrissjóður ríkisstarfsmanna hafði grætt jafnmikið áður og hann tapaði 2008-2010.Og hið sama var að segja um Gildi,lífeyrissjóð.Ég tel,að úttektarmenn hefðu átt að geta um hagnað lífeyrissjóðanna samhliða upplýsingum um, tapið. Það skiptir miklu máli hvort tapið er 480 milljarðar eða 8 milljarðar.
Björgvin Guðmundsson
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Þegar menn græða í póker og spila það svo út þá töpuðu þeir allri upphæðinni sem þeir græddu. Það sama gerðist hjá lífeyrissjóðunum.
Valdimar Samúelsson, 6.2.2012 kl. 19:02
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.