Miðvikudagur, 8. febrúar 2012
Forseti ASÍ gagnrýnir tekjutengingar lífeyrisþega
Miklar tekjutengingar í velferðarkerfinu gætu leitt til þess að fólk fái andúð á að greiða í lífeyrissjóði. Þetta segir formaður Landssambands eldri borgara. Mikilvægt sé að tryggja að fólk sjái ávinning af því að greiða árum saman í sjóðina.
Tekjutengingar í velferðarkerfinu valda því að maður sem fær greiddar 70 þúsund krónur á mánuði frá lífeyrissjóði fær ekki krónu meira á mánuði en sá sem ekki fær neina greiðslu. Ástæðan er sú að hver einasta króna frá lífeyrissjóði skerðir greiðslur frá Tryggingastofnun um krónu, upp í allt að 70 þúsundum. Þá fer skerðingin að minnka.
Það vill þannig til að meðal greiðslur úr okkar lífeyrissjóðum eru einhversstaðar á þessu bili þannig að þetta segir okkur að ríkisstjórnin og stjórnvöld hafa gengið allt of langt í því að tekjutengja bætur almannatrygginga við greiðslur úr lífeyrissjóðunum, segir Gylfi Arnbjörnsson, forseti Alþýðusambandsins. Við teljum að þetta fyrirkomulag núna feli í sér að stjórnvöld hafi tekið upp 100 prósent skatt á elli- og örorkulífeyrisþega og það er auðvitað mjög miður.
Gylfi segir að breyta þurfi kerfinu og tryggja að greiðslur úr lífeyrissjóðum upp að ákveðinni upphæð skerði ekki greiðslur frá Tryggingastofnun. Eðlilega er það þannig að lífeyrisþegar sem lenda í 100% skatti telja sig hafa verið svikna því þeir fá ekkert fyrir það að hafa sparað. Og það er auðvitað bara laukrétt. Og það er þess vegna sem þessi breyting þarf að eiga sér stað. Það er auðvitað ósanngjarnt að vera með 100% skatt á hvaða hlut sem er, segir Gylfi.
Jóna Valgerður Kristjánsdóttir, formaður Landssambands eldri borgara, segir að þetta hafi óhjákvæmilega áhrif á viðhorf fólks til lífeyrissjóðanna. Ef fólk fer að fá verulega andúð á að greiða í lífeyrissjóð og sér engan ávinning af því, sem hefur verið staðreyndin síðustu ár með öllum þeim skerðingum sem settar hafa verið á, þá er það verulega letjandi fyrir fólk að borga í lífeyrissjóð.(ruv.is)
Ég hefi mörg undanfarin ár gagnrýnt tekjutengingar í kerfi almannatrygginga og lífeyrissjóða.Því miður hefi ég fengið litlar undirtektir. Ég fagna því þess vegna,að forseti ASÍ skuli nú taka undir þessa gagnrýni.Bæði Félag eldri borgara í Reykjavík og Landssamband eldri borgara hafa gagnrýnt þessar miklu tekjutengingar harðlega.Gott er að formaður LEB heldur þeirri gagnrýni áfram.
Björgvin Guðmundsson
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.